Stofnmat og ráðgjöf vegna brimbúts (sæbjúga)

Brimbútur, öðru nafni Sæbjúga. Brimbútur, öðru nafni Sæbjúga.

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið, að afli sæbjúgna á átta veiðisvæðum við Ísland verði ekki meiri en 1.717 tonn árið 2027. Þetta er um 21 % lækkun frá ráðgjöf síðasta árs. Ráðgjöf um aflamark eftir veiðisvæðum má sjá hér fyrir neðan:

Mesta lækkunin verður í Faxaflóa (svæði E) og suðursvæðinu við Austurland (svæði H) þar sem lífmassavísitalan hefur lækkað á báðum svæðum. Mið- og norðursvæðin við Austurland (svæði G og F) lækka einnig töluvert. Á miðsvæðinu (G) er lífmassavísitalan mjög sveiflukennd en hefur lækkað töluvert undanfarin tvö ár og á norðursvæðinu (F) er einnig lækkun á lífmassavísitölu undanfarin tvö ár.

Við Aðalvík (svæði A) verður einnig lækkun þar sem meðal lífmassavísitala undanfarinna tveggja ára er lægri en þriggja áranna þar á undan. Það er aðeins eitt svæði með aukningu á ráðgjöf, eða miðsvæðið á Vestfjörðum (svæði B), en þar hefur orðið aukning á lífmassa undanfarin tvö ár. Ráðgjöf fyrir svæði C og D stendur óbreytt, en engin könnun hefur farið þar fram undanfarin ár og aflinn hefur að mestu leyti verið undir ráðlögðu aflamarki.

Hér má sjá ráðgjafarskjal og tækniskjal fyrir brimbút. 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?