Brimbútur

Cucumaria frondosa


Stofnmatsskýrsla
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

9. október 2026

Veiðar

Veiðitilraunir á sæbjúga (brimbút) hófust árið 2003 í Breiðafirði. Afli var lítill allt fram til ársins 2008 þegar um 800 tonnum var landað úr Faxaflóa (svæði E, Mynd 1). Í ágúst árið 2019 var sett ný reglugerð um sæbjúgnaveiðar og voru veiðar þá aðeins heimilar á átta skilgreindum veiðisvæðum (A-H, Mynd 1). Sækja þarf um tilraunaveiðileyfi utan þeirra.

Veiðar eru ekki heimilar í maí til júní vegna hrygningar á vestursvæðum (A-E) og í júní til júlí á austursvæðum (F-H). Veiðarnar fara fram með plóg, allt að 250 cm breiðum með lágmarksmöskvastærð 80 mm. Flestir bátar nota núorðið tvo plóga, en oft hefur verið misbrestur við skráningar á fjölda veiðarfæra (við útreikninga er veiðiálag báta með tvo plóga hækkað með stuðlinum 1,8).

Mynd 1: Brimbútur. Skipting veiðisvæða brimbúts skv. reglugerð frá ágúst 2019.

Afli brimbúts hefur sveiflast töluvert á tímabilinu 2008-2025. Í Faxaflóa (E) hefur árlegur afli verið á bilinu 128 til 1175 t, við Austurland (svæði F og G) á bilinu 0-1760 t og 0-559 t í Aðalvík (svæði A). Mikil aukning varð á afla árin 2016-2019 en hann minnkaði mikið árin 2020 og 2021. Mestur varð aflinn 5985 t árið 2018 og 5605 t árið 2019, en minnkaði í 1465 t árið 2020. Að stórum hluta var aflamark fiskveiðiársins 2019/2020 veitt haustið 2019 og skýrir það að hluta minni afla árið 2020. Veiðarnar fóru einnig hægt af stað haustið 2020, en samkvæmt hagsmunaaðilum var samkomulag þeirra á milli að dreifa veiðinni betur yfir fiskveiðiárið. Markaðsaðstæður voru erfiðar árið 2021 sökum kórónaveirufaraldurs og megnið af þeim 1429 t sem landað var árið 2021 var veitt um sumarið. Afli jókst umtalsvert árin 2022-2023 og lækkaði svo aftur 2024 og 2025 (Mynd 2 og Mynd 3).

Árið 2025 var aflinn nokkuð lægri en áður, eða 1160 t. Mest var þá veitt, líkt og fyrri ár, á svæði G þar sem aflinn náði 742 t. Frá Vestfjarðasvæðum var landað 8 t frá Aðalvík (A), 48 t frá svæði B og 17 t frá svæði C. Úr utanverðum Breiðafirði (svæði D) var landað 43 t og úr innanverðum Breiðafirði (svæði DI) var landað 18 t. Í Faxaflóa (E) var landað 152 t. Á norðanverðum austfjörðum (svæði F) var landað 43 t og 87 t frá sunnanverðum Austfjörðum (svæði H, Mynd 2 og Mynd 3).

Mynd 2: Brimbútur. Afli (t) eftir svæðum árin 2008-2025.
Mynd 3: Brimbútur. Dreifing veiða eftir árum, frá 2008 til 2025.

Almennt hefur afli á sóknareiningu (CPUE) farið lækkandi frá upphafi veiða á hverju svæði fyrir sig, en alls staðar jukust aflabrögð árið 2021 og 2022 samanborið við 2019-2020. Aflabrögð hafa svo lækkað árin þar á eftir á flestum stöðum. Árið 2025 var afli á sóknareiningu 452 kg/klst yfir öll svæðin (Mynd 4). Á svæði D eru miklar sveiflur í afla á sóknareiningu þar sem almennt er lítið veitt þar og einungis eitt skip á veiðum árið 2025 með mikinn afla í hverju togi (Mynd 4). Einnig er rétt skráning á togum stundum ábótavant og sum tog skráð yfir langan tíma eða jafnvel heila daga sem getur einnig haft áhrif á afla á sóknareiningu.

Mynd 4: Brimbútur. Afli á sóknareiningu eftir svæðum árin 2008-2025.
Mynd 5: Brimbútur. Dreifing veiða á Vestfjörðum og Breiðafirði (svæði A, B, C og D) eftir mánuðum árið 2025. Gráskyggðir mánuðir tákna lokun veiða vegna hrygningar sæbjúgna.
Mynd 6: Brimbútur. Dreifing veiða í Faxaflóa (svæði E) eftir mánuðum árið 2025. Gráskyggðir mánuðir tákna lokun veiða vegna hrygningar sæbjúgna.
Mynd 7: Brimbútur. Dreifing veiða á Austfjörðum (svæði F, G og H) eftir mánuðum árið 2025. Gráskyggðir mánuðir tákna lokun veiða vegna hrygningar sæbjúgna.

Breytileiki er eftir árstíðum í afla (Mynd 5, Mynd 6, Mynd 7) og aflabrögðum, en afli á sóknareiningu er að jafnaði hærri á vorin og sumrin þegar veður og sjólag er gott (Mynd 8). Undanfarin ár hafa veiðarnar farið fram nokkuð jafnt og þétt yfir allt árið. Þegar veður eru verri á haustin og veturna er veiðanleiki sæbjúgna minni og gæti það að einhverju leyti útskýrt breytingar í lækkandi afla á sóknareiningu. Á sama tíma hafa orðið breytingar á flotasamsetningu, bátarnir orðnir stærri og geta verið að veiðum í verri veðrum. Til að minnka skekkju í mælingum á beinum afla á sóknareiningu voru gögnin stöðluð með alhæfðu línulegu líkani (GLM) á þeim svæðum sem hafa nógu langa aflasögu (svæði A, E, F og G):

$$ log(afli) = togtími + ár + mánuður + skip $$

Niðurstöður líkansins sýna að afli er að jafnaði minnstur yfir vetrarmánuðina (desember – mars, Mynd 8). Ársvísitalan í líkaninu sveiflast nokkuð svipað og beinn afli á sóknareiningu (Mynd 4). Í Aðalvík (A) hafa fá skip tekið þátt í veiðunum svo skipaþátturinn var fjarlægður úr líkaninu fyrir það svæði. Ársþáttur á svæði A hækkaði nokkuð frá 2020-2022 en lækkaði svo aftur. Í Faxaflóa (E) hefur hann sveiflast nokkuð. Litlar breytingar eru á norðursvæðinu við Austurland (F) á undanförnum árum, en á miðsvæðinu við Austurland (G) hefur ársvísitalan verið sveiflukenndari (Mynd 9).

Mynd 8: Brimbútur. Stöðluð vísitala afla á sóknareiningu (CPUE) eftir mánuði fyrir svæði A, E, F og G, metin með GLM líkani (svæði A án skipsþáttar).
Mynd 9: Brimbútur. Stöðluð vísitala afla á sóknareiningu (CPUE) eftir ári fyrir svæði A, E, F og G, metin með GLM líkani (svæði A án skipaþáttar).

Tilraunaveiðar

Tilraunaveiðaleyfis er krafist fyrir veiðar utan skilgreindra veiðisvæða (Mynd 1). Í júlí 2021 fóru fram tilraunaveiðar á norðanverðum Ströndum en engum afla var landað. Í ágúst 2021 og mars-maí 2024 fóru fram tilraunaveiðar norður af og við Glettinganes og var 7 tonnum landað árið 2021 og 29 tonnum árið 2024 (Mynd 3).

Leiðangrar

Eldri leiðangrar

Farnir voru nokkrir leiðangrar á sæbjúgnabátum á árunum 2008-2010 í Aðalvík (A) og Faxaflóa (E). Lífmassi var metinn um 0,3 kg/m2 í Aðalvík árið 2008, en gert var ráð fyrir að veiðanleiki plógsins væri 100 %. Í Faxaflóa var lífmassinn árið 2008 metinn 0,13 kg/m2 á Vestrahrauni og 0,18 kg/m2 á Syðrahrauni.

Fimm daga leiðangur var farinn í september árið 2017 á miðsvæðið (G) við Austurland. Þar var stofnstærð metin með myndavél, en myndað var 10 sinnum á hverjum stað með föstum ramma á 55 stöðvum, norður og suður af Skrúð. Þéttleiki var metinn 0,6 og 0,7 sæbjúgu/m2 á hvoru svæði. Meðal heildarþyngd (frá fiskvinnslu) af svæðinu um haustið var 198 g, en það gefur lífmassa upp á 0,119 og 0,139 kg/m2 á hvoru svæði (meðaltal 0,13 kg/m2).

Leiðangrar árin 2020-2026

Í grunnslóðarleiðangri haustið 2020, var togað á sæbjúgnasvæðunum A, B og E til H. Notað var bjálkatroll, 4 m á breidd með 40 mm möskvastærð í poka. Bjálkatrollið var dregið í 0,5–1,2 sml á hverri stöð (μ = 0,89) á 4 sml/klst. toghraða. Upphafsstaðsetning hvers togs var ákveðin af handahófi sem og togstefna. Sleppt var þeim togum sem sköruðust við önnur tog og þau sem enduðu utan skilgreinds sæbjúgnasvæðis, en svæðin voru ákvörðuð út frá staðsetningum sæbjúgnabáta á toghraða (VMS). Aftur var farið í leiðangra árin 2021-2025 og endurtekin tog frá árinu 2020, bætt var við stöð á svæði A, en tveimur stöðvum sleppt á svæði E vegna erfiðs botns. Bætt var við þremur togum á svæði D árið 2022 sem voru ekki endurtekin næstu ár. Árið 2026 var togað á 52 stöðvum á svæðum A, B, E, F, G og H (Mynd 10, Mynd 11, Mynd 12). Leiðangrarnir hafa alltaf átt sér stað á sama tíma ársins, almennt á bilinu 7.-30. ágúst.

Meðalþéttleiki brimbúts á sjómílu eftir svæðum var á bilinu 606 bjúgu á svæði H árið 2026 til 3056 bjúgu á svæði D árið 2022 (Tafla 1). Á flestum svæðunum hefur þéttleiki bjúgna minnkað á milli ára. Meðalafli slægðra bjúgna á sjómílu var á bilinu 121 kg á svæði H árið 2026 til 394 kg á svæði D árið 2022 (Tafla 1 & Mynd 10 - 12). Til að meta lífmassavísitölu og óvissumörk sem byggja á slægðri þyngd og stærð svæða var notað landfræðilegt tölfræðilíkan (GLMMS úr R-pakkanum sdmTMB; Anderson o.fl., 2022). Minnsti lífmassinn var metinn á svæði B eða 798 tonn árið 2024, en mestur á svæði G árið 2024 eða rétt rúmlega 7000 tonn (Tafla 1). Árið 2026 var lífmassi fyrir austan land heldur lítill miðað við fyrri ár.

Tafla. 1: Brimbútur. Yfirlit um brimbút í leiðöngrum áranna 2020-2026. Fjöldi toga á svæði, meðalfjöldi brimbúts á hverja dregna togmílu (±SE), meðalafli slægðra brimbúta (kg±SE), lífmassavísitala (tonn) með 95% efri og neðri öryggismörkum.
Mynd 10: Brimbútur. Þéttleiki (fj./sml) í grunnslóðarleiðangri árin 2020-2026 á svæðum A og B. Bláar línur tákna togin og rauð svæði eru veiðisvæðin skv. staðsetningum báta.
Mynd 11: Brimbútur. Þéttleiki (fj/sml) í grunnslóðarleiðangri árin 2020-2026 á svæði E. Bláar línur tákna togin og rauð svæði eru veiðisvæðin skv. staðsetningum báta.
Mynd 12: Brimbútur. Þéttleiki (fj/sml) í grunnslóðarleiðangri árin 2020-2026 á svæðum F, G og H. Bláar línur tákna togin og rauð svæði eru veiðisvæðin skv. staðsetningum báta.

Þéttleiki brimbúts (fjöldi á sjómílu) hefur minnkað á austursvæðunum (F, G og H) frá því að bjálkatrollsleiðangurinn hófst, en fyrir vestan (A, B og E) hefur þéttleikinn haldist stöðugri (Mynd 13).

Mynd 13: Sæbjúga. Þéttleiki sæbjúgna á vestursvæðunum (A, B og E; efri röð) og austursvæðunum (F, G og H; neðri röð). Skyggða svæðið sýnir 95% öryggisbil.

Nokkrum vandkvæðum getur verið bundið við að lengdarmæla sæbjúgu, þannig að mælingin verði óbjöguð, þ.e. að dýrin herpi sig ekki saman og gildni. Við mat á stærðarsamsetningu brimbúts var horft bæði til mælinga á lengd og ummáli og er hún hér eftir kölluð „aðlöguð lengd“. Reiknað var yfirborðsflatarmál dýrsins líkt og sívalnings, en flatarmáli „enda“ sleppt og kvaðratrót tekin af flatarmálinu \(L_a = \sqrt{2*\pi*r*L}\). Samband lengdar og þyngdar er sterkara með aðlagaðri lengd en þegar notuð er hefðbundin lengd eða ummál.

Að jafnaði er þyngd brimbúts hærri við Austurland (svæði F-H) en á svæðum við vestanvert landið (svæði A, B og E; Mynd 14). Einnig er brimbútur nokkuð stærri við Austurland, kápan (skrápurinn) þynnri og vatnsinnihald meira (Mynd 14).

Mynd 14: Brimbútur. Aðlöguð lengd (cm), þyngd (g) og slægð þyngd (g) í grunnslóðarleiðangri árin 2020-2026. Línan táknar meðaltal.

Veður- og sjóskilyrði

Veður- og sjóskilyrði hafa alltaf verið skráð í grunnslóðarleiðöngrunum fyrir hverja stöð fyrir sig (Mynd 15). Til að meta hvort þessi skilyrði hafi áhrif á afla var línulegt líkan sett upp þar sem þéttleiki (skalaður afli á staðlaða toglengd) er svarbreytan og botnhiti, vindhraði og ölduhæð eru skýribreytur, með leiðréttingu fyrir svæði og ári. Engin af þessum þremur veður- og sjólagsbreytum hafði tölfræðilega marktæk áhrif á þéttleika (línulegt líkan, p > 0,05 í öllum tilvikum). Veðurskilyrði virðast því ekki hafa áhrif sama dag og sýnin eru tekin. Hinsvegar geta veðurskilyrði einnig haft töluverð áhrif á dreifingu sæbjúgna dagana áður en sýnin eru tekin og er þessvegna erfitt að meta hvort veður hafi áhrif á þéttleika sæbjúgna í leiðöngrunum.

Mynd 15: Brimbútur. Botnhiti (°C), vindhraði (m/s) og ölduhæð (m) eftir ári og svæði í grunnslóðarleiðöngrum.

Veiðistjórnun

Atvinnuvegaráðuneytið er ábyrgt fyrir stjórn fiskveiða við Ísland og annast framkvæmd laga og setningu reglugerða.

Árið 2009 voru þrjú veiðisvæði brimbúts skilgreind af ráðuneytinu 1) Vestursvæði: Reykjanes að Skagatá, 2) Norðursvæði: Skagatá að Glettinganesi og 3) Suður- og austursvæði: Glettinganes að Reykjanesi. Á hverju svæði voru gefin út þrjú leyfi og bannað var að færa sig milli svæða. Ekkert var veitt á norðursvæðinu þar sem takmarkaðar tilraunir skiluðu ekki árangri. Árið 2013 var svæðaskiptingin felld niður. Upphaflega voru aðalveiðisvæðin í Faxaflóa og Aðalvík en frá árinu 2009 var einnig veitt við Austurland. Árið 2013 voru þrjú meginveiðisvæði skilgreind í reglugerð (795/2013): Austurland, Faxaflói og Aðalvík.

Árið 2009 var stofnstærð metin í Faxaflóa og Aðalvík, veiðisvæðið skilgreint og veitt ráðgjöf um hámarksafla í fyrsta sinn. Árið 2012 var stofnstærð brimbúts við Austurland metin og fylgdi ráðgjöf á skilgreindum svæðum fyrir fiskveiðiárið 2013/2014. Ein ráðgjöf var gefin út fyrir svæðin við Austurland, þrátt fyrir að svæðinu væri skipt niður í tvö svæði (svæði F og G), þar til 2018/2019 þegar henni var skipt upp milli svæðanna. Eftir að svæðum var lokað með reglugerð þegar aflamarki var náð, fóru veiðar enn fram utan skilgreindra veiðisvæða.

Í bréfi frá ráðuneytinu í febrúar 2019 var óskað eftir veiðiráðgjöf fyrir ný svæði utan áður skilgreindra svæða (A, E, F og G), en nokkuð hröð aukning átti sér stað í veiðum á nýjum miðum. Bætt var við nýjum svæðum og eru þau nú átta alls og að mestu samliggjandi (A-H) (Anon, 2019). Frá fiskveiðiárinu 2022/2023 hefur aflamark fyrir sæbjúgu verið gefið út en fram að því var svæðum lokað með reglugerð þegar ráðlögðu aflamarki var náð. Afli sæbjúgna hefur að miklu leyti fylgt eða verið undir ráðlögðu aflamarki frá því að svæðaskiptingin var sett árið 2019 (Mynd 16).

Mynd 16: Sæbjúga. Þróun ráðgjafar eftir árum og svæðum. Bláu dálkarnir tákna afla og rauða línan sýnir ráðgjöf. Ljósbláu dálkarnir á svæði D táknar afla frá svæði DI.

Frá árinu 2027 er ráðgjöf gefin fyrir hvert almanaksár í stað fiskveiðiárs. Er þetta gert þar sem stofnmælingaleiðangurinn fer fram seint í ágúst ár hvert sem er nálægt upphafi fiskveiðiársins sem gerir það að verkum að erfitt er að klára ráðgjöf áður en fiskveiðiárið hefst.

Stofnmat

Grunnur ráðgjafar fyrir árið 2027 fylgir uppfærðri forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir stofna þar sem ekki er hægt að framkvæma tölfræðilegt stofnmat en til eru vísitölur og aðrar upplýsingar um lífsögulega þætti (svæði A, B, E-H). Ráðgjöfin byggir á 𝑟𝑓𝑏-reglu ICES (ICES, 2021) en hún hefur eftirfarandi form:

\[A_{y+1} = A_{y-1} r f b m\]

Þar sem \(A_{y+1}\) er ráðlagður heildarafli, \(A_{y-1}\) er ráðgjöf síðasta árs, \(r\) er hlutfall lífmassa síðustu tveggja ára (Vísitala A) og þriggja ára þar á undan (Vísitala B):

\[r = \frac{\frac {\sum_{i_y-2}^{y-1}I_1} {2}} {\frac{\sum_{i=y-3}^{y-5}}{3}}\]

𝑓 er nálgun (e:proxy) á nýtingu (meðallengd úr afla deilt með meðallengd við hámarksafrakstursgetu):

\[f=\frac{\bar{L}_{y-1}} {L_{F=M}}\]

Þar sem \(\bar{L}\) er meðallengd úr afla sem er hærri en \(L_c\) (lengdin þar sem tíðnin er helmingurinn af tíðni algengasta gildis, sjá Mynd 17). Fyrir sæbjúgun er stuðst við aðlagaðar lengdir úr leiðöngrum (Mynd 18).

\(L_{F=M}\) er reiknað sem:

\[L_{F=M} = 0,75L_c + 0,25L_\infty\]

Þar sem \(L_\infty\) er hámarkslengd tegundar samkvæmt jöfnu von Bertalanffy.

\(b\) er varúðarmörk (ráðlagður heildarafli minnkar þegar lífmassavísitala fellur fyrir neðan gildi aðgerðarmarka), en þau hafa ekki enn verið skilgreind fyrir sæbjúgnastofna.

\(m\) er margfaldari byggður á vaxtarhraða stofns. Fyrir hægvaxta tegundir líkt og brimbút (Hamel & Mercier, 1996) er m = 0,95 en fyrir hraðvaxta tegundir er m = 0,9. Almennt er gert ráð fyrir að ráðgjöf skv. 𝑟𝑓𝑏 reglu gildi í tvö ár (ICES, 2023), en sökum stuttrar tímaraðar leiðangra og minnkandi þéttleika á brimbút fyrir austan land er gert ráð fyrir að ráðgjöfin gildi einungis fyrir næsta almanaksár.

Mynd 17: Brimbútur. Uppsöfnuð aðlöguð lengdardreifing úr leiðöngrum á veiðisvæðum A, B, E, F, G & H. Rauðir stöplar tákna lengdina þar sem tíðni dreifingar er meiri en helmingur (helmingurinn er táknaður með brotalínu) af tíðni algengasta gildis (\(L_c\)). Rauð lóðrétt lína táknar hámarkslengd samkvæmt jöfnu von Bertalanffy (\(L_\infty\)).
Mynd 18: Brimbútur. Meðal aðlöguð veiðilengd (hærri en \(L_c\) viðmið) úr leiðöngrum á veiðisvæðum A, B, E, F, G & H. Bláar brotalínur sýna viðmiðunarlengd (\(L_{F=M}\)).

Heimildir

Anon, 2019. MFRI Assessment Reports 2019. Sea cucumber – New areas. Marine and Freshwater Research Institute, 22 March 2019.

Anderson, S.C., E.J. Ward, P.A. English, L.A.K. Barnett, 2022. sdmTMB: an R package for fast, flexible, and user-friendly generalized linear mixed effects models with spatial and spatiotemporal random fields. bioRxiv 2022.03.24.485545.

Hamel, J.-F., & Mercier, A., 1996. Early development, settlement, growth and spatial distribution of the sea cucumber Cucumaria frondosa (Echinodermata: Holothuroidea). Canadian Journal of Fisheries and Aquatic Sciences, 53, 253–271.

ICES. 2012. Implementation of Advice for Data-limited Stocks in 2012 in its 2012 Advice. ICES CM 2012/ACOM 68. http://www.ices.dk/sites/pub/Publication%20Reports/Expert%20Group%20Report/acom/2012/ADHOC/DLS%20Guidance%20Report%202012.pdf

ICES. 2021. Tenth Workshop on the Development of Quantitative Assessment Methodologies based on LIFE-history traits, exploitation characteristics, and other relevant parameters for data-limited stocks (WKLIFE X). ICES Scientific Reports. Report. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5985

ICES, 2023. Eleventh Workshop on the Development of Quantitative Assessment Methodologies based on LIFE-history traits, exploitation characteristics, and other relevant parameters for data-limited stocks (WKLIFE XI). ICES Scientific Reports. Report. https://doi.org/10.17895/ices.pub.22140260.v1