Í sumar fer fram talning á landsel við strendur Íslands til að meta stærð landselsstofns og breytingar í stofni. Í ár verða í fyrsta skiptið drónar notaðar til að telja seli í stað þess að telja seli úr flugvél.
Um er að ræða hlutmat sem nær yfir Faxaflóa annarsvegar og Norðurland Vestra og Strandir hins vegar. Heildarstofnmat á landsel fór fyrst fram 1980, en þá var stofninn metinn vera rúmlega 33.000 dýr. Síðan hefur heildarstofnmat farið fram samtals 13 sinnum. Seinasti mat var framkvæmt 2020, en þá var fjöldinn áætlaður rúmlega 10.300 dýr. Þetta jafngildir tæplega 70% fækkun frá fyrsta mati og er íslenski landselsstofninn metinn „í hættu“ á válista íslenskra spendýrastofna. Í ljósi viðkvæmrar stöðu landselsstofnsins er mikilvægt að vakta þróun stofnstærðar reglulega.
Fram að þessu hefur aðferðin til að meta stofnstærð verið að telja seli úr flugvél, en framvegis er stefnt að því að nota dróna. Þess vegna verður ekki hægt að telja alla strandlengjuna á sama árinu eins og verið hefur, heldur aðeins hluti strandsvæða tekin fyrir á hverju ári og eldri möt uppfærð koll af kolli. Nýtt heildarstofnmat mun því liggja fyrir eftir nokkur ár.
Verkefninu er unnið af Hafrannsóknastofnun og Selsetri Íslands, í samstarfi við drónafyrirtækið Svarma ehf.