Þórunn Þórðardóttir heldur brátt til hafs ásamt skipum frá Bretlandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi að mæla norsk-íslenska síldarstofnin.
Mynd: Esther Horvath.
Dagana 27. apríl til 15. maí verður rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir við stofnmælingar á norsk-íslenska síldarstofninum og að kanna ástand vistkerfi sjávar austur og norðaustur af landinu.
Um er að ræða árlegan alþjóðleganleiðangur sem hefur verið farinn síðan árið 1996, og fagnar því 30 ára afmæli í ár. Til viðbótar við Þórunni taka skip þátt í leiðangrinum frá Bretlandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi. Niðurstöður leiðangursins verða kynntar í sameiginlegri leiðangursskýrslu til Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) undir lok sumars.