Rannsóknarleiðangri við kortlagningu búsvæða á hafsbotni nýlokið

Rannsóknarleiðangri við kortlagningu búsvæða á hafsbotni nýlokið

Rannsóknarleiðangri við kortlagningu búsvæða á hafsbotni lauk nýlega en leiðangurinn tók 20 daga. 

Fimm vísindamenn um borð í rannsóknaskipinu Þórunni Þórsdóttur undir stjórn Steinunnar Hilmu Ólafsdóttur unnu að því að varpa ljósi á heim hafsbotnsins og lýsa rannsóknarsvæðinu út frá gerð hams og þeim lífverum sem þar finnast.

Myndavélar búnar öflugum ljósum voru festar á þrífót sem var sendur niður á botn til að taka myndskeið og ljósmyndir á 34 til tæplega 500 metra dýpi. Samanlagt nærri 70 km af myndbandsupptökum og þúsundir ljósmynda sem verða nýtt til frekari greiningar.

Þessi rannsókn er hluti af stærra verkefni sem unnið er að umhverfis allt Ísland.

Markmiðið er að kortleggja og lýsa búsvæðum hafsbotnsins og þeim lífverusamfélögum sem þar finnast. Rannsóknir þessa árs beindust að landgrunninu úti fyrir Austfjörðum, fyrir Norðaustan og úti fyrir Norðurlandi.

Myndirnar, hvar sjá má fegurð hafsbotnsins, hér á síðunni eru teknar úr leiðangrinum.

 

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?