Ráðgjöf vegna humars

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að humarafli ársins 2020 verði ekki meiri en 214 tonn svo fylgjast megi með stærðarsamsetningu og dreifingu stofnsins. Jafnframt leggur stofnunin til að allar humarveiðar verði bannaðar í Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar uppvaxandi humri.

Til að minnka álag á humarslóð ráðleggur Hafrannsóknastofnun að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi.

Stofnstærð humars í stofnmælingu 2019 lækkaði um 20% frá árinu 2016. Á sama tíma hefur veiðihlutfall minnkað úr 1.9% í 0.4%.  Þéttleiki humarholna við Ísland (0.07 holur/m2) mælist nú með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf um. Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.

https://www.hafogvatn.is/is/veidiradgjof/humar

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?