Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir komandi fiskveiðiár kynnt 12. júní nk.

Frá marsralli 2025. Ljósmynd: Rut Sigurðardóttir. Frá marsralli 2025. Ljósmynd: Rut Sigurðardóttir.

Hafrannsóknastofnun kynnir úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár föstudaginn 12. júní 2026 kl. 9.00. Kynningin fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5, Hafnarfirði en verður einnig streymt á í fjarfundi (tengill hér neðar).

Gestum verður boðið að þiggja léttar kaffiveitingar fyrir fundinn. Fundurinn er öllum opinn fyrir áhugasama.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

08:30 – Húsið opnar, léttur morgunverður 

09:00 – Opnun fundar. Eggert Benedikt Guðmundsson settur forstjóri Hafrannsóknastofnnar opnar fundinn

09:05 - Árangursmælikvarðar. Pamela J. Woods, fiskifræðingur
Glærur:  Gæði stofnmats og árangursmælikvarðar í ráðgjöf.

09:20 – Vistkerfisyfirlit. Warsha Singh, vistfræðingur
Glærur:  WGICE - Vinnuhópur um samþætt vistkerfismat íslenskra hafsvæða

09:35 – Vernd í hafi. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur

Glærur:  Vernd í hafi.

09:50 – Lestur fiskkvarna með forritinu Photolith. Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar

Glærur:  Lestur fiskkvarna með forritinu Photolith.

10:00 - Kynning ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Bjarki Þór Elvarsson, tölfræðingur. 

Glærur:  Kynning ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2026/2027

10:45 – Almennar umræður: t.d nánar um ráðgjöf einstakra tegunda – farið í forsendur, og eftir atvikum nánar í aðrar tegundir, að ósk fundarmanna.

Einungis þau sem sitja fundinn staðbundið geta lagt fram spurningar og tekið þátt í umræðum. 

11:00 – Lok fundar

Uppfært: hér má finna upptöku af fundinum frá 12. júní sl. 

Tengil fyrir fjarfund (Teams) finna hér. Athugið þau sem mæta á fjarfund geta ekki tekið þátt í fundinum með sama hætti og þau sem mæta staðbundið.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?