Ný grein um fjölbreytta þætti erfðamengis beltisþara

Ný grein um fjölbreytta þætti erfðamengis beltisþara

Ný grein um fjölbreytta þætti erfðamengis beltisþara á vestur Íslandi er nýkomin út, sjá hér. Niðurstöður sýna fram á stofna sem eru aðgreinanlegir og liggja frá norðri til suðurs, sem og frá innri til ytri hluta Faxaflóa.
    
Landfræðileg fjarlægð og hafstraumar eru líklega að knýja áfram eitthvað af þeirri aðgreiningu sem sést, en ákveðin erfðatengsl við megin umhverfisbreytur benda til þess að staðbundin aðlögun og/eða þéttleikaháð val gæti einnig verið að eiga sér stað.
    
Merkilegt er að gegnsýring aragónít (Aragonite Saturation) var helsti umhverfisþátturinn sem tengdist erfðabreytum í "Gradient Forest“ greiningu, en það er umhverfisþáttur sem þéttleiki beltisþarans getur sjálfur haft áhrif á.

Fjármögnun fyrir raðgreiningu erfðamengja beltisþarana kom frá Running Tide, sem var með starfsemi á Íslandi frá 2022 þar til 2024 þegar fyrirtækið hætti starfsemi. Alls voru 52 erfðamengi af beltisþara raðgreind, og eru þau aðgengileg öllum hér.

Frekari greiningar, sem notast við landfræðilega aðskilin sýni víðar í kringum Ísland með aukinni sýnatöku innan einstakra staða, er nauðsynleg til þess að betur staðfesta mögulega staðbundinna aðlögun.

Sérstakar þakkir til Svanhildar Egilsdóttur fyrir ljósmyndir af beltisþara í Breiðafirði.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?