Málþing Selaseturs Íslands verður haldið á Selasetrinu á Hvammstanga þann 29. maí nk. Setrið býður öll velkomin á þennan árlega viðburð um rannsóknir í náttúru Íslands.
Hér er um mikilvægan vettvang að ræða til að deila rannsóknum, skiptast á sjónarmiðum og kanna nýjar aðferðir á milli fræðigreina. Því verður lögð áhersla á náttúrurannsóknir hérlendis í víðu samhengi. Fyrirlestrar og umræður verða á ensku.
Málþingið skipulagt af Hafrannsóknarstofnu í samstarfi við Selasetri Íslands.
Dagskrá og nánari upplýsingar hér: Selasetur Íslands - Icelandic Seal Center
Dagskráin á íslensku:
14:00 Setningarávarp, Örvar B. Eiríksson
Rannsóknir á selum
- 14:10 Rannsóknir á selum á Íslandi: Vöktun til að tryggja sjálfbæra og gagnreynda stjórnun, Sandra M. Granquist
- 14:25 Áhrif áreita af mannavöldum á landsel (Phoca vitulina) í Ísafjarðardjúpi, Ella N. Jørgensen, Haseeb S. Randhawa, Sandra M. Granquist
- 14:40 Áhrif landslagsþátta á val á legustöðum landsela (Phoca vitulina) og útsela (Halichoerus grypus) á Íslandi, Sebastian I. Enault, Sandra M. Granquist
- 14:55 Selir í dýrafræðilegum ritgerðum á handritum frá 17., 18. og 19. öld, Guðrún Laufey Guðmundsdóttir
15:10 Kaffihlé (15 mínútur)
Líffræði
- 15:25 Líffræðilegur fjölbreytileiki í íslenskum hornsílum og sníkjudýrum þeirra, Alessandra Schnider
- 15:40 Tunglsljósinu er ekki um að kenna: Hvernig hafa dagsbirta, dýpi og tunglfasir áhrif á gönguhegðun hrognkelsa við strendur Íslands, James Kennedy
15:55 Kaffihlé (10 mínútur)
Umhverfisvísindi
- 16:05 Fléttur á strandsvæðum Íslands, Starri Heiðmarsson
- 16:20 LIFE Icewater – Vatnshlot á mörkum ferskvatns og sjávar, Ragna Guðrún Snorradóttir
- 16:35 Þiðnun sífrera!? Breytingar í vistkerfum vatnadýra, Rakel Þorbjörnsdóttir
16:50 Kaffihlé (15 mínútur)
Verndun og líffræðilegur fjölbreytileiki
- 17:05 Þekking gesta á selavernd í Húnabyggð (Húnaþingi vestra), Sandra M. Granquist, Marion Muff, Cécile Chauvat og Jessica Aquino
- 17:20 Mistök skapa töfra: "Photovoice" um líffræðilegan fjölbreytileika, Jessica Aquino og Cécile Chauvat
17:35 Almennar umræður
17:55 Lokaávarp, Örvar B. Eiríksson
18:05 Veitingar og tengslamyndun
19:00 Kvöldverður á Sjávarborg