Málstofa um líffræðilega fjölbreytni 22. maí

Málstofa um líffræðilega fjölbreytni 22. maí

Á morgun föstudaginn 22. maí kl. 13.00 – 14.00, á degi alþjóðlegs dags líffræðilegrar fjölbreytni, verður haldin málstofa undir yfirskriftinni Líffræðileg fjölbreytni og staða Íslands i N-132 í Öskju, Háskóla Íslands.

Rannsóknastjóri Hafrannsóknastofnunar Chris Pampoulie flytur þar erindi sem heitir „Do we have solutions to protect biodiversity while exploiting the ocean?” og fjallar þar um líffræðilegan fjölbreytileika út frá BioProtect verkefninu.

Á málstofunni verður kafað ofan í stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og fá að heyra af yfirstandandi vinnu við aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Að auki verða tvö verkefni kynnt sem snúa að mati á og verndun líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Málstofan verður bæði á íslensku og ensku og er haldinn í samstarfi Biodice, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Náttúruminjasafns Íslands.

Þann 22. maí ár hvert er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni haldinn til að minnast þess þegar Samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var undirritaður í Ríó 1992.

Sjá nánar hér, dagskrá og fleira. 

Facebook viðburður er hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?