Rannsóknasvæði Árna Friðrikssonar í makrílleiðangri sumar 20226, Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lagði úr höfn í morgun 7. júlí í árlegan, alþjóðlegan leiðangur með það meginmarkmið að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.
Samhliða stofnmælingum verður safnað gögnum sem nýtast í vöktun og rannsóknum á vistkerfi sjávar, meðal annars um frumframleiðni, ástand sjávar, magn og samsetningu átu. Niðurstöður leiðangursins verða teknar saman í sameiginlegri skýrslu til Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) síðsumars.
Samstarf margra þjóða
Þetta er sautjánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í leiðangrinum, en að honum standa einnig skip frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Árni Friðriksson mun rannsaka hafsvæðið fyrir norðan, austan, sunnan og vestan Ísland, auk svæðis í grænlenskri lögsögu norðan Íslands og við Jan Mayen, sjá mynd.
Hægt er að fylgjast með ferðum Árna Friðrikssonar hér.
Um leiðangurinn
Leiðangurinn tekur alls 24 daga og siglir Árni þá tæplega 4.500 sjómílur, eða um 8.300 km. Í leiðangrinum verða teknar 48 yfirborðstogstöðvar á fyrirfram ákveðnum staðsetningum. Um borð eru 6 vísindamenn og 17 manna áhöfn.