Loðnumæling og ráðgjöf undir væntingum

Loðna á færibændi. Mynd/Hafrannsóknastofnun Loðna á færibændi. Mynd/Hafrannsóknastofnun

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðast liðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin.

Mælingarnar

Rannsóknaskipin Tarajoq og Árni Friðriksson voru við loðnumælingar á tímabilinu 28. ágúst til 26. september við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi. Enda þótt tækist að fylgja áætlun á mestum hluta rannsóknasvæðisins og yfirferð þar talin fullnægjandi, náðist ekki að fara yfir nyrsta hluta svæðisins. Árni Friðriksson lenti í miklum og tíðum óviðrum í leiðangrinum og sérstaklega nyrst á svæðinu. Afleiðingarnar urðu að nyrst þurfti að fara í grófari yfirferð til að ná mælingu milli óveðra og hafís hamlaði að lokum frekari mælingum (mynd 1). Á suðurhluta svæðisins var nánast eingöngu ungloðna en fullorðna loðnan var norðar og allt norður að 71°N þar sem Árni Friðriksson þurfti frá að hverfa vegna óveðurs og hafíss.

Mynd 1. Leiðarlínur Tarajoq og Árna Friðrikssonar haustið 2026 (gráar línur), þéttleiki loðnu (bleikar línur þvert á leiðarlínur) og útbreiðsla hafís 23. september (litaskali).

Niðurstöður mælinga og ráðgjöf

Stærð veiðistofnsins, sem verður uppstaða veiðanna á komandi vertíð, mældist tæp 560 þúsund tonn. Að teknu tilliti til samþykktrar aflareglu og metins afráns gefur sú mæling ráðgjöf upp á 105 773 tonn. Horfa verður til þess að aflareglan kveður á um að ráðgjöf byggð á haustmælingu á veiðistofni sé 2/3 af útreiknuðu aflamarki, sem var 158 660 tonn og gefur fyrirheit um hvað þessi mæling gefur í afla.

Þessi mæling á stærð veiðistofnsins er töluvert undir væntingum byggðum á ungloðnumælingum haustið 2025. Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358 044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir. Munurinn á niðurstöðum þessara mælinga er talinn, allavega að hluta til, stafa að því að ekki náðist yfir allt útbreiðslusvæði loðnunnar í nýafstöðnum leiðangri nyrst og því sé um að ræða vanmat á stærð veiðistofnsins.

Niðurstöður mælinga á magni ungloðnu (ókynþroska) var upp á 65.9 milljarða einstaklinga og upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2027/28 verður því væntanlega 83 283 tonn samkvæmt aflareglu.

Lokaráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð, sem kemur þá í stað ráðgjafar upp á 105 þúsund tonn, verður gefin að loknum vetrarmælingum á nýju ári. Ekki hafa verið teknar lokaákvarðanir um fyrirkomulag þeirra mælinga, en niðurstöður síðustu mælinga munu hafa áhrif þar á.

Sjá skjöl vegna ráðgjafar 12. október 2026 hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?