Loðna Mallotus villosus
Birting ráðgjafar: 12. oktober 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun og Grænlenska náttúrufræðistofnunin.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Grænlenska náttúrufræðistofnunin (GINR) leggja til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að afli fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meiri en 105 773 tonn.
Stofnþróun
Hrygningarstofn árið 2027 er yfir varúðarmörkunum Blim; ekki hafa verið skilgreind viðmiðunarmörk fiskveiðidánartölu fyrir stofninn.
Loðna. Afli, vísitala ókynþroska loðnu samkvæmt bergmálsmælingum að hausti og stærð hrygningarstofns á hrygningartíma. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 90 % öryggismörk.
Stofnmat og viðmiðunarmörk
Forsendur ráðgjafar | Aflaregla samþykkt af strandríkjunum |
Aflaregla | Sjá aflareglu (Anon 2023, ICES 2023) |
Stofnmat | Stofnvísitölur byggðar á bergmálsmælingum |
Inntaksgögn upphafsráðgjafar | Vísitölur ungloðnu úr bergmálsleiðöngrum að hausti. |
Inntaksgögn milliráðgjafar | Vísitölur kynþroska loðnu úr bergmálsleiðöngrum að hausti. |
Inntaksgögn lokaráðgjafar | Vísitölur kynþroska loðnu úr bergmálsleiðöngrum að hausti og vetri. |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Aflaregla | Bmgt | 114 000 | Skilgreint í samræmi við samþykkta aflareglu (Anon 2023), í tonnum |
Utrigger | 50 | Skilgreint í samræmi við samþykkta aflareglu (ICES 2015), nýliðunarvísitala, í milljörðum | |
Cap | 127 | Skilgreint í samræmi við samþykkta aflareglu (ICES 2015), nýliðunarvísitala, í milljörðum | |
Varúðarnálgun | Blim | 114 000 | Meðalstærð þriggja lítilla hrygninga sem skiluðu meðalnýliðun (ár 1981,1982 og 1990), í tonnum (ICES 2023) |
Horfur
Ísland, Grænland og Noregur komust að samkomulagi (Anon, 2015; Anon, 2023) um að nota eftirfarandi aflareglu sem grundvöll fiskveiðistjórnunar, byggt á reglu sem var þróuð og yfirfarin hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES, 2015; ICES, 2023).
Markmið aflareglunnar er að setja lokaaflamark sem tryggir með 95 % líkum að eftir standi að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar. Til þess að þetta náist er farið til bergmálsmælinga á tímabilinu frá september til febrúar og rágjöf um aflamark gefin í þremur skrefum: sem upphafsaflamark, milliaflamark og lokaaflamark.
Upphafsráðgjöf fyrir næsta fiskveðiár er gefin byggt á mati á stærð ókynþroska hluta stofnsins (Uimm) að loknum bergmálsmælingum að hausti (september-október).
Tveir fastar eru ákveðnir:
Utrigger = 50 milljarðar ókynþroska loðnu.
TACMax = 400 þús. tonn þegar U > 127 milljarðar ókynþroska.
Aðferðin við að setja upphafs/bráðabirgðaaflamark er:
TAC = 0 ef Uimm < 50 milljarðar.
TAC = 5.211702 x (Uimm - Utrigger) þús. tonn fyrir Uimm á bilinu 50–127 milljarðar.
TAC = 400 þús. tonn fyrir Uimm > 127 milljarðar.
Milliráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveðiár er gefin að loknum bergmálsmælingum að hausti. Stærð kynþroska hluta stofnsins (hrygningarstofn) er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja, og notuð sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Milliráðgjöf um aflamark er sett sem 2/3 af þeim afla sem gæfi p(SSB < Blim = 114 þús. tonn) < 0.05.
Lokaráðgjöf er gefin að loknum bergmálsmælingum að vetrarlagi (janúar-febrúar). Stærð hrygningastofns er metin með óvissu og lögð við gögn um spáða stærð og dreifingu afræningja. Lokaaflamark byggir á öllum bergmælsmælingaleiðöngrum frá hausti að vetri. Niðurstöðurnar eru notaðar sem upphafsgildi í afránslíkanakeyrslum sem gera ráð fyrir mismiklum veiðum fram að hrygningu í mars. Lokaráðgjöf um aflamark er sett sem sá afli sem gæfi p(SSB < Blim = 114 þús. tonn) < 0.05. Aflareglan sem var yfirfarin hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (2023) gerir ráð fyrir að haustmæling vegi að hámarki 1/3 á móti mælingum að vetrarlagi.
Loðna. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
Afli (2026/2027) fram að mælingu | 0 | í tonnum |
Veiðistofn (2027) | 565 057 | Stofnmæling skv. haustmælingu, í tonnum. |
Stærð þorskstofns (2027) | 772 349 | Inntak í afránslíkani, í tonnum |
Stærð ýsustofns (2027) | 230 346 | Inntak í afránslíkani, í tonnum |
Stærð ufsastofns (2027) | 256 570 | Inntak í afránslíkani, í tonnum |
Loðna. Áætluð þróun stærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Grunnur | Afli (2026/2027) | Hrygningarstofn (2027) 1) | % Breyting á ráðgjöf2) |
|---|---|---|---|
Aflaregla | 105 773 | 278 036 | -70 |
1) Hrygningarstofn (t) 15. mars 2027 | |||
2) Ráðlagt aflamark fyrir 2026/2027(2) miðað við ráðlagt upphafsaflamark 2026/2027 (1) (358044 t) | |||
Niðurstöður bergmálsmælinga á stærð kynþroskahluta stofnsins í september 2026 og að teknu tiliti til niðurstaðna afránslíkansins voru að með afla upp á 158 660 tonn næðust markmið aflareglunnar um að skilja eftir að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar með 95 % líkum. Milliráðgjöf miðast við 2/3 af þeim afla, eða 105 773 tonn.
Gæði stofnmats
Yfirferð í haustleiðangri 2026 var takmörkum háð, bæði vegna ótíðar og hafíss. Enda þótt tækist að fylgja áætlun á mestum hluta rannsóknasvæðisins og yfirferð þar talin fullnægjandi, náðist ekki að fara yfir nyrsta hluta svæðisins. Þar var kynþroska loðnu að finna, en ekki tókst að finna nyrðri mörk dreifingar hennar. Því er líklegt að kynþroska hluti stofnsins sé vanmetinn en að óþekktu marki. Mæling kynþroska hlutans hefur með lágan fráviksstuðul (0.19) en það mat nær aðeins til breytileikans á svæðinu sem komist var yfir. Matið á óvissunni, tekur því ekki tillit til hugsanlegs vanmats á stærð stofnsins vegna ónógrar yfirferðar leiðangurs.
Aðrar upplýsingar
Alþjóðahafrannsóknaráðinu er aðeins ætlað að veita upphafsráðgjöf sem byggir á því að litlar líkur séu á að ráðgjöf um upphafsaflamark verði hærri en lokaráðgjöf (ICES, 2015). Hafrannsóknastofnun mun uppfæra ráðgjöf um aflamark eftir bergmálsmælingar í janúar–febrúar 2027 og sú ráðgjöf verður lokaráðgjöf um aflamark fyrir vertíðina 2026/2027.
Tímamörkum loðnuvertíðar var breytt árið 2021 með samkomulagi strandríkja, úr 20. júní–15. apríl í 15. október–15. apríl.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Loðna. Saga ráðlegginga: Upphafstillaga, ráðlögð lokaaflaheimild frá Hafrannsóknastofnun, samþykkt lokaaflaheimild og afli.
Fiskveiðiár | Upphafstillaga | Lokatillaga | Lokaflamark | Afli alls |
|---|---|---|---|---|
1986/1987 | 1 100 000 | 1 333 400 | 1 290 000 | 1 334 000 |
1987/1988 | 500 000 | 1 115 800 | 1 115 000 | 1 117 000 |
1988/1989 | 900 000 | 1 036 500 | 1 065 000 | 1 036 000 |
1989/1990 | 900 000 | 807 800 | 900 000 | 808 000 |
1990/1991 | 600 000 | 313 600 | 250 000 | 313 000 |
1991/1992 | 0 | 677 100 | 740 000 | 677 000 |
1992/1993 | 500 000 | 787 700 | 900 000 | 788 000 |
1993/1994 | 900 000 | 1 178 700 | 1 250 000 | 1 179 000 |
1994/1995 | 950 000 | 863 900 | 850 000 | 864 000 |
1995/1996 | 800 000 | 929 300 | 1 390 000 | 926 000 |
1996/1997 | 1 100 000 | 1 570 900 | 1 600 000 | 1 569 000 |
1997/1998 | 850 000 | 1 244 900 | 1 265 000 | 1 245 000 |
1998/1999 | 950 000 | 1 099 400 | 1 200 000 | 1 100 000 |
1999/2000 | 866 000 | 1 000 000 | 1 000 000 | 931 000 |
2000/2001 | 650 000 | 1 110 000 | 1 090 000 | 1 070 000 |
2001/2002 | 700 000 | 1 300 000 | 1 300 000 | 1 249 000 |
2002/2003 | 690 000 | 1 000 000 | 1 000 000 | 989 000 |
2003/2004 | 555 000 | 875 000 | 900 000 | 743 000 |
2004/2005 | 335 000 | 985 000 | 985 000 | 784 000 |
2005/2006 | 0 | 238 000 | 235 000 | 247 000 |
2006/2007 | 0 | 385 000 | 385 000 | 377 000 |
2007/2008 | 207 000 | 207 000 | 207 000 | 203 000 |
2008/2009 | 0 | 0 | 0 | 15 000 |
2009/2010 | 0 | 150 000 | 150 000 | 151 000 |
2010/2011 | 0 | 390 000 | 390 000 | 391 000 |
2011/2012 | 366 000 | 765 000 | 765 000 | 748 000 |
2012/2013 | 0 | 570 000 | 570 000 | 551 000 |
2013/2014 | 0 | 160 000 | 160 000 | 142 000 |
2014/2015 | 225 000 | 580 000 | 580 000 | 517 000 |
2015/2016 | 53 600 | 173 000 | 173 000 | 173 500 |
2016/2017 | 0 | 299 000 | 299 000 | 297 732 |
2017/2018 | 0 | 285 000 | 285 000 | 287 000 |
2018/2019 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2019/2020 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2020/2021 | 169 520 | 127 300 | 127 300 | 128 647 |
2021/2022 | 400 000 | 869 600 | 869 600 | 689 200 |
2022/2023 | 400 000 | 459 800 | 459 800 | 330 051 |
2023/2024 | 0 | 0 | 0 | 0 |
2024/2025 | 0 | 8 589 | 8 589 | 9 439 |
2025/2026 | 46 384 | 197 474 | 197 474 | 190 086 |
2026/2027 | 358 044 |
Heimildir og ítarefni
Anon. 2015. Agreed Record of Conclusions of Coastal State consultations on the management of the capelin stock in the Iceland–East Greenland–Jan Mayen area. 2015. Reykjavík, Iceland. 7–8 May 2015. https://www.regjeringen.no/contentassets/37b66bdf33d84e99924bb27553641719/samledokument-lodde-mai-2015---agreed-records---bilateral-avtale.pdf Last accessed: 31 May 2025.
Anon. 2023. Framework arrangement between Greenland and Iceland on the conservation and management of capelin. Reykjávik, Iceland 3 July 2023. 4 pp. https://www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1655-f_I.pdf Last accessed: 31 May 2025.
ICES. 2015. Report of the Benchmark Workshop of Icelandic Stocks (WKICE), 26-30 January 2015, ICES Headquarters, Copenhangen, Denmark. ICES CM 2015/ACOM:31. 335 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5295
ICES. 2023. Benchmark workshop on capelin (WKCAPELIN). ICES Scientific Reports. 5:62. 282 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.23260388
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Loðna. Hafrannsóknastofnun, 12. júní 2026.