Brislingar af ólíkri stærð. Mynd: Svanhildur Egilsdóttir.
Fyrr á árinu kom út greinin Where are you from? Finding the origin of the recently observed sprat in Iceland using a panel of SNPs. Greinin byggir á samvinnu vísindamanna við íslensku og norsku Hafrannsóknastofnanirnar. Sjá hlekk á greinina hér.
Rannsóknin varpar ljósi á uppruna brislings við Ísland. Brislingur fannst fyrst í íslenskri lögsögu árið 2017 og er nú algengur víða við suður- og vesturströnd landsins. Greining á SNP erfðamörkum í 64 sýnum sem safnað var árið 2021 sýndi að íslenski brislingurinn á rætur að rekja til stofnsins sem finnst í Norðursjó og við Bretlandseyjar.
Líklegt að tegundin hafi borist með kjölfestuvatni skipa
Þar sem fullvaxinn brislingur syndir sjaldan langar vegalengdir milli hafsvæða eru mestar líkur taldar á að tegundin hafi borist hingað með kjölfestuvatni skipa, þótt ekki sé hægt að útiloka að sviflæg egg/lirfur hafi borist með hafstraumum frá Bretlandseyjum eða Færeyjum.
Útbreiðsla brislings við Ísland heldur áfram að aukast. Í stofnmælingu botnfiska haustið 2025 fannst brislingur fyrst í innanverðum Húnaflóa og vorið 2026 fannst hann í Skagafirði. Ekki er þó enn ljóst hvort hann nær að festa sig í sessi við Norðurland, líkt og hann hefur gert á svæðinu frá Faxaflóa til Ísafjarðardjúps.