Rannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist í leiðangurinn 8. september.
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir.
Haustmæling loðnu 2026 hófst 23. ágúst og stendur til 24. september. Um er að ræða sameiginlegan leiðangur Hafrannsóknastofnunar á Íslandi og Náttúruauðlindastofnunar Grænlands (GINR).
Rannsóknaskipið Tarajoq, á vegum GINR, hóf sinn hluta mælingarinnar um helgina suðvestur af Íslandi (mynd 2 hér neðar). Rannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist svo í leiðangurinn 8. september. Áætlað er að mæling r/s Tarajoq taki 16 daga, en að r/s Árni Friðriksson verði 17 daga á sjó við bergmálsmælingar. Alls er ráðgert að skipin sigli 6084 sjómílur.
Fylgjast má með ferðum og staðsetningu skipanna hér.
Tilgangur mælingarinnar
Markmið mælingarinnar er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu Ísland, Austur-Grænland og Jan Mayen. Haustmælingar loðnu hafa verið framkvæmdar frá árinu 1978.
Í því felst sýnataka og mælingar á plöntusvifi (undir PHATE-verkefninu), dýrasvifi, uppsjávarfiskum og eðlisþáttum sjávar á svæðinu.

Mynd 1. Rannsóknamennn beggja stofnana að störfum við loðnusýni (vinstri mynd) og við að samræma úrvinnslu bergmálsgagna (hægri mynd) á sameiginlegri vinnustofu 22. ágúst.
Í ár hefur Hafrannsóknastofnun aukið framlag sitt til vistfræðirannsókna enn frekar með þátttöku tveggja hvalatalningamanna á r/s Árna Friðrikssyni. Fylgjast má með hvalatalningum hér.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður loðnumælingarinnar liggi fyrir um miðjan október. Hafrannsóknastofnun mun þá gefa út endurskoðaða ráðgjöf um veiðar á komandi fiskveiðiár (2026/2027).
Sameiginleg vinnustofa GINR og Hafrannsóknastofnunar
Þann 22. ágúst héldu rannsakendur beggja stofnana sameiginlega vinnustofu (mynd 1 hér ofar) til að tryggja samræmt verklag um borð í rannsóknarskipunum, þar á meðal gæðaeftirlit með bergmáls- og fiskagögnum sem verður safnað.

Mynd 2. Fyrirhugaðar leiðarlínur r/s Tarajoq (rauð lína) og r/s Árna Friðrikssonar (blá lína) í loðnumælingunni haustið 2026. Hefðbundnar sjórannsóknastöðvar með mismunandi sýnatökubúnaði eru sýndar sem punktar.