Bráðabirgðatölur fyrir stangveiði á laxi sumarið 2026

Bráðabirgðatölur fyrir stangveiði á laxi sumarið 2026

Heildarfjöldi stangveiddra laxa sumarið 2026 var um 46.300 fiskar sem er um 35 % meiri veiði en var á árinu 2025 og um 12% yfir árlegri meðalveiði frá 1974.

Heildarfjöldi stangveiddra laxa sumarið 2025 var um 46.300 fiskar (1. mynd), sem var um 35% meiri veiði en 2025 og um 12% yfir meðalveiði áranna 1974-2025. Laxveiðin 2026 var um 12.100 löxum meiri en árið 2025. Aukning í laxveiði kom fram í öllum landshlutum (2. mynd).

Mynd 1. Stangveiði í íslenskum ám frá 1974 - 2026. Veiðinni er skipt í landaðan afla (blátt), veitt og sleppt (grænt), veiði úr sleppingum gönguseiða (rautt) og fjöldi slepptra hafbeitarlaxa (ljósblátt). Tölur frá 2026 eru bráðabirgðatölur.

Í tölum um heildarlaxveiði eru taldir allir laxar sem veiðast, ásamt þeim sem sleppt er aftur (veitt og sleppt) ásamt löxum með uppruna úr sleppingum gönguseiða, en þeir voru alls um 11.200 sumarið 2026, sem er um 2.000 löxum fleiri en veiddust 2025.

Við samanburð á veiðitölum úr stangveiði milli ára eða tímabila, þarf að taka tillit til aukinnar veiði vegna gönguseiðasleppinga og þeirra fiska sem veiðast aftur eftir að hafa verið sleppt í stangveiði (veitt og sleppt). Til að bera saman veiðitölur til lengri tíma er leiðrétt fyrir þessum þáttum, þ.e. ekki taldir með þeir laxar sem ættaðir eru úr gönguseiðasleppingum til hafbeitar og áætlaður fjöldi endurveiddra laxa (veitt og sleppt). Þannig er heildarstangveiði villtra laxa árið 2026 um 35.100 laxar. Árið 2025 var þessi hluti veiðinnar um 25.000 laxar (3. mynd) og er nú komin upp fyrir meðalveiði áranna frá 1974.


2. mynd. Stangveiði á laxi sumarið 2026 skipt eftir landshlutum. Á Suðurlandi er gerður greinarmunur á veiði á villtum laxi (blátt) og laxi úr hafbeitarám (rautt). Tölur frá 2026 eru bráðabirgðatölur.

Athygli vekur að frá árinu 2018 hefur komið fram að veiði dregst saman á oddatölu árum en eykst á jöfnum árum. Ekki er enn vitað hvað veldur því en vert að gefa þessu breytta mynstri gaum.

Veiðiréttarhafar eru hvattir til að skila veiðitölum til Hafrannsóknastofnunar sem fyrst, en lokatölur um veiði verða gefnar út að samantekt lokinni.

Mynd 3. Heildarfjöldi stangveiddra laxa í íslenskum ám, að undanskilinni veiði í hafbeitarám og þegar leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum veiða og sleppa. Brotalínan sýnir árlegan meðalfjölda veiddra laxa á tímabilinu. Tölur frá 2026 eru bráðabirgðatölur.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?