Blendingurinn sem e hefur haldið sig að sumarlagi í hafinu norður af Skjálfanda síðan árið 2012.
Sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun birtu nýlega yfirlitsgrein um tilvist blendinga steypireyðar (Balaenoptera musculus) og langreyðar (B. physalus) í heimshöfunum. Greint hefur verið frá blendingum þessara tegunda í hvalveiðum í atvinnuskyni allt frá lokum 19 aldar. Þar lýstu hvalveiðimenn oft hvölum sem sýndu útlitseinkenni sem voru á milli steypireyðar og langreyðar. Á síðustu áratugum hefur verið staðfest með erfðagreiningu að þessir hvalir, sem eru óhefðbundnir í útliti, séu blendingar beggja tegunda.
Yfirlitsgreinin, sem ber titilinn „What Do We Know About Hybrid Blue (Balaenoptera musculus) and Fin (B. physalus) Whales? A Comprehensive Review Across Ocean Basins“, dregur saman núverandi þekkingu á tilvist blendinga beggja tegunda í öllum úthöfum. Til þessa hafa samtals 46 mögulegir blendingar verið skráðir, þar af hafa 17 verið staðfestir með erfðagreiningu: 15 úr Norður-Atlantshafi, einn úr Miðjarðarhafi og einn úr norðaustanverðu Kyrrahafi. Erfðagreiningar benda til þess að í flestum tilfellum sé móðir blendinganna steypireyður og faðirinn langreyður.
Höfundarnir nefna að heimildir um hugsanlegar orsakir blendingamyndunar meðal hvala, og þá sérstaklega steypireyðar og langreyðar, séu enn takmarkaðar. Hins vegar hafa komið fram tilgátur um að hvalategundir séu líklegri til að geta af sér blendinga þegar útlit og hegðunareinkenni, svo sem tíðni hljóðmerkja og líkamsstærð, eru svipuð hjá báðum foreldrategundum. Höfundarnir fullyrða jafnframt að óháð því hvaða ferli liggur að baki, hafi verið sýnt fram á að blendingamyndun milli steypireyðar og langreyðar hafi átt sér stað í allavega tvær aldir og hafi líklega haft áhrif á erfðasamsetningu beggja tegunda. Þeir mæla með því að safnað sé vefjasýnum úr hvölum sem sýna óvenjuleg útlitseinkenni til að unnt sé að leggja betra mat á áhrif blendingamyndunar á báðar tegundirnar.
Greinina má finna hér.

Steypireyður (a, b), langreyður (c, d) og blendingur (e) í íslenskri landhelgi. Myndirnar voru góðfúslega lánaðar af Gentle Giants á Húsavík (a, b, e; vefsíða: https://www.gentlegiants.is) og Special Tours Iceland (c, d; vefsíða: https://specialtours.is). Blendingurinn (e) sem er vel þekktur og hefur haldið sig að sumarlagi í hafinu norður af Skjálfanda síðan árið 2012, er karldýr. Hann er afkvæmi steypireyðarkúar og langreyðartarfs. Hann sést venjulega innan um hóp steypireyða.