Af getraun, Gullveri og Gullrifi

Samsett mynd af bæklingi, getraun og Gullrifinu góða. Samsett mynd af bæklingi, getraun og Gullrifinu góða.

Sjávarútvegssýningin Icefish fór fram í lok september. Atvinnuvegaráðuneytið og fjórar undirstofnanir þess, Hafrannsóknastofnun, Fiskistofa, Matís og Matvælastofnun, deildu bás á sýningunni. Starfsfólk stofnananna dreifði meðal annars bæklingnum Hver gerir hvað? en honum er ætlað að skerpa á því í hugum almennings hvaða stofnun sinnir hvaða hlutverki, enda er þeim ekki ósjaldan ruglað saman. Til að krydda kynninguna á básnum var útbúin getraun með sama nafni. Þar drógu þátttakendur línu á milli fullyrðinga um stofnanirnar og nafna þeirra til að undirstrika ólík hlutverk þeirra á sviði sjávarútvegs á Íslandi.

Um 140 manns tóku þátt og var dregið með aðstoð gervigreindar. Hún var beðin að velja tölu af handahófi á milli 1 og 140 og valdi miða nr. 102 í bunkanum. Á honum var nafn Axels J. Ágústssonar, sem hlýtur glæsilegan vinning: Lúxus (Signature) aðgang fyrir tvo í nýju Reykjaböðin í Hveragerði.

Samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar sló á þráðinn til Axels, sem reyndist aldeilis hafa átt samskipti við stofnunina á liðnum árum. Axel var 50 ár til sjós, þar af 40 ár sem skipstjóri og 30 þeirra á Gullveri, sem gerður var út frá Seyðisfirði. Hann þekkti því vel til hlutverks Hafrannsóknastofnunar.

Frá árunum til sjós mundi hann eftir góðri sögu af því þegar hann hjálpaði Steinunni Hilmu Ólafsdóttur, sjávarvistfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun, og fleiri vísindamönnum að leita að kóralrifum SA af landinu. Stærsta rifið sem fannst fékk nafnið Gullrif.

Axel sagði nafnið tengjast togaranum, og í frétt Austurfréttar frá 2020 segir: „En það á sér líka skírskotun til togarans Gullvers á Seyðisfirði, en það var skipstjóri sem benti vísindamönnum Hafrannsóknastofnunar á að skoða svæðið.“ Lesa má meira um Gullrifið, kóralrif og ánægjuleg samskipti sjómanna á Gullveri og rannsóknafólks á Hafró í fréttinni hér.

Axel segist vera týpan sem aldrei vinnur neitt og kom því af fjöllum þegar hann frétti af vinningnum. Hann brást þó glaður við og hlakkar til að heimsækja Reykjaböðin í byrjun vetrar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?