Vatnakerfi Blöndu 2020 – Seiðarannsóknir, stangveiði og göngufiskur. HV 2021-23

Nánari upplýsingar
Titill Vatnakerfi Blöndu 2020 – Seiðarannsóknir, stangveiði og göngufiskur. HV 2021-23
Lýsing

Í skýrslunni eru teknar saman niðurstöður seiðarannsókna og stangaveiði í Blöndu og Svartá sumarið 2020, auk fiskgengdar um fiskteljara í Ennisflúðum og mælinga á vatnshita í Blöndu í Ennisflúðum. Þéttleiki og ástand seiða var kannað með rafveiðum í júlí. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvum í Blöndu og voru þau vorgömul til þriggja ára, en bleikjuseiði á einum stað og urriðaseiði á fjórum stöðum. Laxaseiði veiddust á öllum sex stöðvunum í Svartá, auk bleikjuseiða á fjórum stöðvum og urriðaseiða á fimm stöðvum. Vísitala þéttleika laxaseiða í Blöndu árið 2020 mældist svipuð og 2018 og 2019, en nokkru lægri en árin 2015-2017. Í Svartá mældist vísitala þéttleika laxaseiða 5,3 seiði/100 m2 og lækkaði mikið milli ára.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2021
Blaðsíður 35
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð lax, bleikja, seiðarannsóknir, teljari, vatnshiti, veiði, Blanda, Svartá, Blöndulón, Ennisflúðir
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?