Samantekt vöktunar vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna 2020. HV 2021-39

Nánari upplýsingar
Titill Samantekt vöktunar vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna 2020. HV 2021-39
Lýsing

Sjókvíaeldi á laxi er vaxandi atvinnugrein á Íslandi. Eldinu fylgja áhættuþættir sem taldir eru geta ógnað stöðu villtra laxastofna hér á landi, t.d. hvað varðar erfðablöndun. Árið 2017 kom út áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi. Í kjölfar þess hefur verið settur aukinn kraftur í vöktun vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna. Vöktuninni má skipta niður í nokkra þætti, vöktun með fiskteljurum, greiningu meintra strokulaxa úr eldi sem veiðast í ám, upprunagreiningu laxa með hreisturrannsóknum og rannsóknir á erfðablöndun. Í skýrslunni er gerð frekari grein fyrir þessum þáttum ásamt helstu niðurstöðum rannsókna ársins 2020.

 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2021
Blaðsíður 24
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð fiskeldi, lax, erfðablöndun, fiskteljari, hreistur, greining á uppruna, áhættumat
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?