Rannsóknir á vatnalífríki vegna færslu Hringvegar í Skaftárhreppi

Nánari upplýsingar
Titill Rannsóknir á vatnalífríki vegna færslu Hringvegar í Skaftárhreppi
Lýsing

Ágrip

Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir mati á áhrifum færslu Hringvegar í Skaftárhreppi á vatnalíf. Vegagerðin lagði fram mismunandi veglínur og í skýrslunni er lagt mat á mismunandi áhrif þeirra á vatnalífríki vatnsfalla sem þær þvera. Einnig er lagt mat á áhrif efnistöku vegna framkvæmdarinnar á vatnalífríkið. Helstu vatnsföllin sem framkvæmdirnar snerta eru Breiðbalakvísl, Geirlandsá, Hörgsá og Fossálar. Veiðihlunnindi eru umtalsverð í Skaftárhreppi og er stangveiði á sjóbirtingi mikil. Sjóbirtingsveiðin í Geirlandsá er að meðaltali 615 fiskar, í Hörgsá 52 fiskar og í Fossálum 131 fiskar. Einnig veiðist þar lax og bleikja en í minna mæli. Rannsóknir sýna að laxfiskar nýta árnar til hrygningar og seiðauppeldis og voru tekin sýni í dragánum Geirlandsá og Hörgsá til þess að meta frumframleiðni þörunga og hvaða botndýr væri þar að finna. Til að byggja betur undir matið voru langtímagögn um seiðarannsóknir skoðuð m.t.t. þróunar seiðaþéttleika og fleiri þátta. Niðurstöður matsins benda til þess að tiltölulega lítil umhverfisáhrif verði af völdum þverana Rauðár og Merkilækjar þó svo að þar verði gerð vegræsi. Lagt er til að við þverun Fossála og Breiðbalakvíslar verði byggðar steyptar brýr með nægilega löngu hafi þannig að straumhraði aukist ekki frá því sem hann er við náttúrulegar aðstæður á þverunarstöðum. Áhrif efnistöku geta orðið allnokkur, sérstaklega á áreyrum Hörgsár, sem metnar voru mjög raskaðar af efnistöku á liðnum árum. 

Abstract

This report presents an assessment of the impact of the relocation of the Ring-Road in Skaftárhreppur on aquatic life. The Icelandic Road Administration submitted different road lines and the report assesses their different effects on the aquatic ecosystem of the rivers they cross. The impact of quarrying for the project on the aquatic ecosystem is also assessed. The main rivers affected by the construction are R. Breiðbalakvísl, R. Geirlandsá, R. Hörgsá and R. Fossálar. Fishing benefits are considerable in Skaftárhreppur and fishing for sea trout is extensive. The average sea trout catch in Geirlandsá is 615 fish, in Hörgsá 52 fish and in Fossálar 131 fish. Salmon and Arctic char are also caught there, but to a lesser extent. Research shows that salmonids use the rivers for spawning and juvenile rearing, and samples were taken in the tributaries Geirlandsá and Hörgsá to assess the primary productivity of algae and which benthic animals could be found there. To better support the assessment, long-term data on juvenile research were examined with regard to the development of juvenile density and other factors. The results of the assessment indicate that there will be relatively little environmental impact from the Rauðá and Merkilækur crossings. It is proposed that concrete bridges should be built at the crossing of the R. Fossálar and R. Breiðbalakvísl, the bridges must be sufficiently long so that the current velocity does not increase from what it is under natural conditions at the crossing points. The effects of quarrying can be considerable, especially on the banks of the Hörgsá river, which has already been greatly disturbed by quarrying in recent years. 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Benóný Jónsson
Nafn Ragnhildur Magnúsdóttir
Nafn Haraldur R. Ingvason
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2024
Tölublað 49
Blaðsíður 46
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Umhverfismat, sjóbirtingur, lax, bleikja, hryggleysingjar, blaðgræna, efnistaka, environmental assessment, sea-trout, Atlantic salmon, arctic char, bentic fauna, chlorophyl a, quarrying.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?