Lífríki og vistfræðilegir gæðaþættir í Varmá í Ölfusi

Nánari upplýsingar
Titill Lífríki og vistfræðilegir gæðaþættir í Varmá í Ölfusi
Lýsing

Ágrip

Varmá í Ölfusi er sérstætt straumvatn vegna jarðhitaáhrifa sem víða er að finna í vatnakerfinu. Vegna þeirra áhrifa er Varmá efnarík og vatnshiti oftast yfir umhverfishita. Þessi náttúrulegu sérkenni skapa þannig aðstæður fyrir mikla frumframleiðni og ríkulegt lífríki. Markmið rannsóknarinnar var að meta lífríki, efnabúskap og vistfræðilegt ástand árinnar áður en ráðist verður í úrbætur á skólphreinsistöð Hveragerðisbæjar. Rannsóknin náði til eðlis- og efnafræðilegra þátta, frumframleiðenda, botnlæga hryggleysingja og fiska á fjórum rannsóknastöðum, tveimur fyrir ofan og tveimur neðan við útrás stöðvarinnar.

Niðurstöður sýndu greinileg áhrif frárennslis neðan útrásar. Þar mældist veruleg aukning í styrk næringarefna, sérstaklega ammóníums og annarra köfnunarefnissambanda og gáfu gildi á ammóníum til kynna lélegt vistfræðilegt ástand. Kísilþörungasamfélög breyttust niður eftir ánni og IPS-vísir benti til lakara vistfræðilegs ástands neðan útrásar en ofan hennar. Rétt neðan útrásar var þéttleiki botnlægra hryggleysingja margfalt meiri en ofan hennar, sérstaklega vegna mikils þéttleika grotæta. Samhliða auknu næringarefnaálagi minnkaði fjölbreytileiki og jafndreifni hryggleysingja samfélaga og grotlífverur eins og ánar urðu ríkjandi hópur. Þéttleiki laxfiskaseiða var mun meiri ofan við útrásina en neðan hennar. Engin laxfiskaseiði veiddust á neðstu sýnatökustöðinni sem gæti stafað af álagi vegna fráveitu, auk þess sem búsvæði þar voru síðri fyrir laxfiska en á efri stöðvunum. Tvö urriðaseiði greindust með PKD-nýrnasýki og eitt laxaseiði reyndist af eldisuppruna. Einnig fannst búrbobbi (Physella acuta, áður Physella heterostropha), framandi ferskvatnssnigill úr skrautfiskaræktun, í miklu magni neðan útrásar. Niðurstöður benda til þess að vistfræðilegt ástand Varmár sé gott til mjög gott ofan útrásar skolphreinsistöðvarinnar en neðan hennar eru skýr merki um næringarefnaauðgun og lífrænt álag. Áhrifin koma fram í efnasamsetningu vatns, þörungasamfélögum, botndýralífi og fiskstofnum og undirstrika mikilvægi fyrirhugaðra úrbóta á fráveitumálum á vatnasviðinu.

 

Abstract

Varmá River is a unique stream ecosystem due to influence of geothermal activity on the catchment area. The river is rich in dissolved substances, and its water temperature generally exceeds ambient levels. The natural characteristic of the river supports high primary productivity and a thriving ecosystem. The aim of this study was to assess the river's biota, chemical composition and ecological status prior to planned constructions on enlarging the capacity of the sewage treatment plant in Hveragerði which disposes wastewater into the river. This study covered physical and chemical characteristics, primary producers, benthic invertebrates and fish populations at four sampling sites, two located upstream and two downstream of the plant's wastewater discharge point.

The results demonstrated a clear impact from the wastewater discharge downstream of the outlet from the sewage treatment plant. A significant increase in nutrient concentrations was observed, particularly regarding ammonium and other nitrogen compounds, where ammonium levels indicated bad ecological status below the wastewater discharge. Diatom communities shifted downstream, and the IPS index indicated moderate to poor ecological status below the outlet compared to above it. Below the outlet, the density of benthic macroinvertebrates was much higher than upstream, especially due to high density of detritivores. Associated with the increased nutrient load, the diversity and evenness of invertebrate communities decreased with a shift toward the dominance of detritivorous oligochaetes. The density of salmonid juveniles was much higher upstream of the sewage outlet than downstream. No salmonid juveniles were found at the lowermost sampling site which could be because of pressure from the sewage outlet as well as poorer habitat quality compared with the upper sampling sites. Two brown trout juveniles were diagnosed with Proliferative Kidney Disease (PKD), and one Atlantic salmon juvenile was identified as being of aquaculture origin. Additionally, bladder snail (Physella acuta, syn. Physella heterostropha), an invasive freshwater snail associated with the ornamental fish culture was found in high abundance downstream of the outlet. The results indicate that the ecological status of the Varmá River is good to high upstream of the sewage treatment plant discharge, whereas downstream there are clear signs of nutrient enrichment and organic loading. These impacts are reflected in the water chemistry, algal communities, benthic fauna and fish populations, underscoring the importance of the planned improvements to the sewage system within the catchment area.

Höfundar
Nafn Benóný Jónsson
Nafn Eydís Salome Eiríksdóttir
Nafn Iris Hansen
Nafn Ragnhildur Magnúsdóttir
Nafn Stefán Már Stefánsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 36
Blaðsíður 50
ISSN 2298-9137
Leitarorð Varmá, vistfræðilegt ástand, vatnsgæði, efnasamsetning vatns, næringarefni, blaðgræna a, kísilþörungar, hryggleysingjar, urriði, fráveita, skólphreinsistöð, líffræðilegir gæðaþættir, eðlisefnafræðilegir gæðaþættir, Varmá River, ecological status, water quality, river chemical composition, nutrient concentrations, chlorophyl a, diatoms, benthic invertebrates, brown trout, sewage treatment plant, wastewater discharge, biological quality elements, physico- chemical quality elements.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?