Búsvæðamat í þverám Þjórsár 2025

Nánari upplýsingar
Titill Búsvæðamat í þverám Þjórsár 2025
Lýsing

Ágrip

Búsvæðamat var framkvæmt á ófiskgengum svæðum í Hvammsá, Kálfá og Tungá. Notaðar voru sömu aðferðir og við fyrra búsvæðamat á vatnasvæði Þjórsár. Rannsóknirnar eru liður í undirbúningi fyrirhugaðra virkjana í Neðri Þjórsá. Megin markmið þeirra er að auka þekkingu á göngu laxfiska í og úr sjó, landnámi á nýjum svæðum ofan Búða og í ófiskgengum þverám til að undirbúa mótvægisaðgerðir gegn áhrifum virkjananna. Samtals voru skoðaðir 12.783 m farvega á ófiskgengum svæðum í matinu, þar sem 8.033 m voru í Kálfá, 3.994 m í Hvammsá og 756 m í Tungá. Samtals gaf matið 2.404 framleiðslueiningar fyrir lax, þar sem 82% þeirra féll til í Kálfá; 14,5% í Hvammsá og 3,4% í Tungá.

Abstract

A habitat assessment was carried out in non-accessible parts of River Hvammsá, r. Kálfá and r. Tungá. The assessment was executed above impassable waterfalls and examined the bottom structure. The same methods were used as in the previous habitat assessment in the Þjórsá catchment area. Their main goal is to increase knowledge about salmonid migration between sea and freshwater, colonization of new areas above Búði and in non-accessible tributaries to prepare countermeasures against the impacts of the power plants. A total of 12,783 m of channel was examined of which 8,033 m were in Kálfá, 3,994 m in Hvammsá and 756 m in Tungá. In total, the assessment yielded 2,404 salmon production units (FE), of which 82% fell in Kálfá, 14.5% in Hvammsá and 3.4% in Tungá.

 

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Benóný Jónsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2026
Tölublað 3
Blaðsíður 19
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
ISSN 2298-9137
Leitarorð Búsvæðamat, botnmat, Þjórsá, Hvammsá, Tungá, Kálfá, framleiðslueiningar, lax, urriði, habitat assessment, bottom assessment, River Þjórsá, Hvammsá, Tungá, Kálfá, production units, salmon, brown trout.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?