Vöktun á súrnun sjávar og jöklum aukin

Ljósm. Stjórnarráðið Ljósm. Stjórnarráðið

Ríflega 250 milljónum króna verður varið til að efla vöktun á súrnun sjávar og á jöklum næstu fimm árin hér á landi. Þetta var tilkynnt miðvikudaginn 25. september í tilefni útkomu nýrrar skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og freðhvolfið.

Ljóst er að fylgjast þarf vel með ofangreindum breytingum og af þeim sökum hefur Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, ákveðið að auka við vöktun á hafi og jöklum í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Veðurstofu Íslands.

Ráðherra og forstjóri Hafrannsóknastofnunar undirrituðu samning sem felur í sér að efla vöktun á súrnun hafsins og áhrifum hennar á lífríki og vistkerfi í hafinu umhverfis Íslands. Hafrannsóknastofnun fær 35 milljónir króna á árinu 2019 og 30 milljónir króna árlega á árunum 2020-2023, eða samtals 155 milljónir króna, til þessa viðfangsefnis.

Framlögum ársins í ár verður varið til kaupa á tækjabúnaði til þess að efla vöktun sem þegar á sér stað um sýrustig í hafi, en einnig til að hefja vöktun á botndýrum með tilliti til súrnunar sjávar. Niðurstöðunum verður m.a. skilað til alþjóðlegra stofnana og samvinnuverkefna sem Ísland tekur þátt í, auk þess sem þær verða nýttar í reglulegar vísindaskýrslur um afleiðingar loftslagsbreytinga á Íslandi.

Einnig var tilkynnt sama dag um aukna vöktun Veðurstofu Íslands á jöklum á Íslandi undir heitinu Hörfandi jöklar. Alls verður 15 milljónum króna varið í vöktunina í ár og samtals 21 milljón króna frá og með næsta ári. Á árabilinu 2019-2023 er því um tæpar 100 milljónir að ræða. Framlögin verða m.a. nýtt til þátttöku í alþjóðlegum vöktunarverkefnum og til að setja upp sérstaka jöklavefsjá sem birtir uppfærðar upplýsingar um jökla og jöklabreytingar. Afkomureikningar fyrir jökla hér á landi verða einnig bættir sem mun t.d. gefa kost á birtingu daglegra upplýsinga um ákomu, leysingu og afkomu þeirra. Þá verður unnið gagnasafn um útbreiðslu íslenskra jökla og miðlun upplýsinga og myndræn framsetning bætt.

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?