Unnar Þór Gylfason, yfirvélstjóri á rannsóknaskipi Hafrannsóknastofnunar Árna Friðrikssyni HF200, og Ásgeir Gunnarsson fiskifræðingur héldu nýlega kynningu fyrir nemendur í Áslandsskóla. Þeir voru þar með fyrirlestur um rannsóknaverkefni sem vanalega er nefnt vorrall en þá fara um 100 manns á sjó á fjórum skipum og taka 600 stöðvar hringinn í kringum landið.
Þeir Unnar Þór og Ásgeir krufu fiska með krökkunum og tóku kvarnir úr fiskhausum til sýna hvernig þeir eru aldursgreindir. Einnig var kíkt í maga fiska til að rannsaka fæðuinnihald. Þannig, meðal annars, eru búin til gögn sem liggja til grundvallar þegar Hafrannsóknastofnun ráðleggur yfirvöldum hve mikið ætti að veiða af ýmsum fiskstofnum. Óhætt er að segja að nýr heimur fiska og hafrannsókna hafi lokist upp fyrir börnunum meðan á kynningunni stóð enda alsæl með heimsóknina.

Fleiri myndir á Facebook síðu Hafrannsóknastofnunar, smellið hér.