Veiðráðgjöf loðnu lækkar

Leiðangurslínur rs. Árna Friðrikssonar (rauðar) og rs. Tarajoq (bláar) í ágúst -september 2022 ásamt… Leiðangurslínur rs. Árna Friðrikssonar (rauðar) og rs. Tarajoq (bláar) í ágúst -september 2022 ásamt dreifingu loðnu.

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að loðnuafli veturinn 2022/2023 verði ekki meiri en 218 400 tonn. Ráðgjöfin kemur í stað upphafsráðgjafar upp á 400 000 tonn sem byggði á magni ókynþroska loðnu í haustmælingum 2021. Ráðgjöfin verður endurskoðuð að loknum mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð veiðistofnsins í janúar/febrúar eins og aflaregla strandríkja fyrir stofninn gerir ráð fyrir.

Hlekkur á ráðgjöf.

Þessi endurskoðaða ráðgjöf byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 27. ágúst til 29. September (mynd). Um var að ræða umfangsmikla yfirferð og urðu litlar tafir vegna veðurs.

Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Stofnmælingin hafði fremur lágan breytileikastuðul (CV=0.2) þar sem loðnan var nokkuð jafnt dreifð auk þess sem almennt var mest af kynþroska loðnu á svæðum með þétta yfirferð.

Heildarmagn loðnu mældist tæp 1,1 milljón tonn og þar af var stærð hrygningarstofns metin 763 þúsund tonn. Magn ókynþroska í fjölda var um 41 milljarðar en samkvæmt samþykktri aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2023/2024. Gögn um niðurstöður ungloðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafsaflamark vertíðarinnar 2023/2024 seinna í haust.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?