Útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ miðvikudaginn 20. maí

Útskriftarhópur 27. árgangs nemenda Sjávarútvegsskóla GRÓ á ferðalagi um Suðurnesin. Útskriftarhópur 27. árgangs nemenda Sjávarútvegsskóla GRÓ á ferðalagi um Suðurnesin.

Athöfn til að fagna útskrift 27. árgangs nemenda Sjávarútvegsskóla GRÓ verður haldin miðvikudaginn 20. maí. nk. Viðburðurinn fer fram í húsnæði Hafrannsóknastofnunar, Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og hefst kl. 15:00. Samhliða mun hanga uppi í anddyri stofnunarinnar veggspjaldasýning með kynningum á rannsóknarverkefnum nemenda. Útskriftarathöfnin er opin öllum áhugasömum. 

Smelltu hér til að taka þátt í útskriftinni á netinu.

Dagskrá: 

14:50 – 15:00 Gestir mæta

15:00 – 15:05 Kynnir, Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, býður gesti velkomna

15:05 – 15:15 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpar gesti

15:15 – 15:20 Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ Þekkingarmiðstöðvar Þróunarsamvinnu, ávarpar gesti

15:20 – 15:50 Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ, stjórnar afhendingu skírteina til nemenda.

15:50 – 15:58 Fulltrúi útskriftarnemenda flytur ávarp

15:58 – 16:00 Kynnir býður gestum í móttöku og að skoða veggspjaldasýningu nemenda

Um 27. árganginn

Í árgangnum eru 23 sérfræðingar frá 15 löndum í Mið-Ameríku, Karíbahafi, Afríku, Asíu og Kyrrahafi. Auk þess tók einn gesta-nemandi þátt í inngangshluta námsins. Stærsta sérsviðið að þessu sinni var Fiskveiðilínan (8 þátttakendur). Þar á eftir kom Stofnstærðarlínan (6), Fiskeldislínan (5) og Matvæla- og gæðastjórnunarlínan (4). Að þeim meðtöldum sem nú útskrifast hafa alls 535 manns lokið sexmánaða þjálfunarnámi Sjávarútvegsskólans frá því hann hóf starfssemi 1998.

Sjá upplýsingasíðu um 27. árgang hér


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?