
Dagana 15. til 18. apríl var haldið námskeið í greiningu botnþörunga á Hafrannsóknastofnun. Leiðbeinendur voru þau Karl Gunnarsson og Juliet Brodie sem starfar á Náttúruminjasafninu í London. Þeim til aðstoðar voru Svanhildur Egilsdóttir og Lilja Gunnarsdóttir, starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar. Karl og Juliet hafa áður unnið saman, meðal annars farið hringinn í kringum landið og rannsakað tegundir botnþörunga og útbreiðslu.
Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Markmiðið er að auka færni þeirra í greiningu botnþörunga í sjó. Sérstök áhersla var lögð á tegundir á lista Vatnatilskipunar (e. Water Framework Directive) en innleiðing verkefnisins, gagnasöfnun og vöktun á botnþörungum mun hefjast núna í sumar (ICEWATER).
Námskeiðið tókst mjög vel, frábærir leiðbeinendur og einstaklega áhugasamir og flottir nemendur sem komu frá Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofu Vestfjarða, Náttúrustofu Norðausturlands, Náttúrustofu Suðausturlands, Náttúrustofu Norðurlands vestra, Náttúrustofu Suðurlands, Náttúrustofu Suðvesturlands og Hafrannsóknastofnun.