Þörungablómi á Austfjörðum

Creatium lineatum í sýni úr Reyðarfirði frá 15. september 2021. Myndin er tekin í gegnum smásjá með … Creatium lineatum í sýni úr Reyðarfirði frá 15. september 2021. Myndin er tekin í gegnum smásjá með 10x20 stækkun ( Kristín J. Valsdóttir).

Síðustu daga hefur orðið vart við mikinn þörungablóma inni á Reyðarfirði og á Seyðisfirði og jafnvel víðar í fjörðum fyrir austan.

Sýni frá Reyðarfirði bárust Hafrannsóknastofnun í gær og hefur tegundin sem veldur blómanum þar verið greind sem skoruþörungurinn Ceratium lineatum (mynd). Blómi þessarar tegundar er ekki alveg óþekkt fyrirbæri hér við land og sást til dæmis töluvert af henni í Breiðafirði í ágúst síðastliðnum.

Ceratium tegundir eru þekktar víða um heim fyrir að fjölga sér hratt við ákveðnar aðstæður og valda þannig miklum blóma, svo miklum að þörungabreiðurnar verða sjáanlegar á yfirborði sjávar. Þó að þörungarnir sjálfir myndi ekki eitur og séu þannig ekki eiturþörungar, geta svo miklir blómar valdið álagi á vistkerfið og jafnvel orsakað fiskdauða. Það er vegna þess að þörungarnir geta sest í tálkn fiskanna og þá er það einkum fjöldi þeirra í hverjum lítra sjávar sem veldur álaginu.

Við Ísland er vel þekkt að blómi svifþörunga getur einnig orðið að haustlagi þegar lagskiptingin við yfirborð fer að brotna upp og næringarefni berast við þá blöndun til yfirborðslagsins þar sem birtu nýtur. Ekki eru til nýjar umhverfismælingar úr Reyðarfirði en athuganir voru gerðar í Fáskrúðsfirði um miðjan ágúst, þá var þar skýr lagskipting við yfirborð. Blómans er vart víða við Austfirði þannig að þau skilyrði sem ýta undir svo stórfelldan blóma svifþörunga eru ekki einungis bundin við Reyðarfjörð.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?