Úthafsrækja, einnig nefnd stóri kampalampi (l. pandalus borealis).
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir.
Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli úthafsrækju hvors fiskveiðiárs 2026/2027 og 2027/2028 verði ekki meiri en 3246 tonn. Ráðgjöf yfirstandandi fiskveiðiárs (2025/2026) var 4537 tonn. Forsendur ráðgjafar má finna hér.
Stofnvísitala úthafsrækju var nokkuð stöðug frá 2012 til 2018 en hefur síðan lækkað jafnt og þétt og árið 2026 var hún sú lægsta sem mælst hefur. Afli á sóknareiningu hefur einnig lækkað og er nú nálægt lægstu gildum. Vísitala þorsks hefur verið há frá árinu 2014. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar og veiðar má nálgast hér.