ÚTHAFSRÆKJA Pandalus borealis

Ráðgjöf 2026/2027

3 246

tonn

Ráðgjöf 2025/2026

4 537

tonn

Breyting á ráðgjöf

-28 %

Birting ráðgjafar: 31. ágúst 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli hvors fiskveiðiárs 2026/2027 og 2027/2028 verði ekki meiri en 3 246 tonn.

Stofnþróun

Vísitala veiðistofns er yfir aðgerðamörkum (Itrigger) og varúðarmörkum (Ilim) og veiðiálag er fyrir neðan kjörsókn (Fproxy).

Úthafsrækja. Afli, vísitala veiðihlutfalls og vísitala veiðistofns ásamt aðgerðarmörkum (Itrigger), varúðarmörkum (Ilim) og kjörsókn (Fproxy).

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Hámarksafrakstur

Aflaregla

Ekki hefur verið sett aflaregla fyrir þennan stofn

Stofnmat

Byggt á tímaháðum breytingum í stofnmælingum

Inntaksgögn

Afli og vísitölur úr stofnmælingu úthafsrækju

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

Fproxy

0.2

Meðaltal Fproxy áranna 2010–2015

Varúðarnálgun

Ilim

12 200

Gildi vísitölu veiðistofns sem er 20 % af meðaltali þriggja hæstu vísitölugilda

Itrigger

12 200

Ilim

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir skammlífa stofna þar sem ekki er hægt að beita aldurs-aflagreiningu, en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2022).

Lífmassavísitala úthafsrækju, ásamt afla, er notuð til að reikna vísitölu veiðihlutfalls (Fproxy = afli/vísitala). Ráðgjöfin er fengin með því að margfalda síðasta gildi vísitölunnar með markgildi Fproxy.

Úthafsrækja. Útreikningur ráðgjafar.

Ay: Ráðgjöf fyrir 2025/2026

4 537

Lífmassavísitala

Vísitala (I2026)

16 229

Vísitala veiðihlutfalls

Fproxy: Meðaltal Fproxy áranna 2010–2015

0.2

Gátmörk

Aðgerðarmörk vísitölu (Itrigger)

12 200

b: Vísitala í hlutfalli við aðgerðamörk, ef I2026/Itrigger > 1 þá 1 annars 0

1

Varúðarlækkun til þess tryggja hrygningarstofn fari ekki undir gátmörk (Blim) með 95 % líkum

Ráðgjöf fyrir 2026/20271)

3 246

% breyting á ráðgjöf2)

-28

1) A~y+1~ = I~y~ × F~proxy~ × b

2) Tölur í töflu eru námundaðar. Útreikningar eru gerðir með námunduðum tölum og því gætu reiknuð gildi ekki stemmt

Horfur

Vísitala ungrækju hefur verið lág frá 2004 og hefur verið í sögulegu lágmarki frá 2015. Stofnvísitala úthafsrækju var nokkuð stöðug 2012-2018 en hefur lækkað stöðugt og árið 2026 var hún sú lægsta frá árinu 1988. Stofnmælingar síðustu ára benda því til að stofninn muni ekki stækka á næstu árum.

Aðrar upplýsingar

Næsta stofnmæling er áætluð í júlí 2028.

Vísitala þorsks í stofnmælingu úthafsrækju hefur verið há frá árinu 2014. Einnig hefur mælst mikið af þorski í stofnmælingu botnfiska að vori og hausti undanfarin ár. Því er líklegt að afrán á úthafsrækju hafi aukist á undanförnum árum.

Hitastig sjávar við botn hefur farið hægt vaxandi eftir árið 2005.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Úthafsrækja. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Fiskveiðiár

Tillaga

Aflamark

Afli alls

1991/1992

35  000

40  000

1992/1993

35  000

40  000

45  100

1993/1994

40  000

52  000

55  908

1994/1995

60  000

62  000

62  965

1995/1996

40  000

63  000

66  017

1996/1997

55  000

60  000

57  444

1997/1998

70  000

75  000

61  179

1998/1999

40  000

40  000

30  678

1999/2000

20  000

20  000

20  677

2000/2001

25  000

25  000

22  052

2001/2002

35  000

35  000

27  354

2002/2003

30  000

30  000

24  327

2003/2004

20  000

20  000

18  038

2004/2005

5  000

10  000

5  344

2005/2006

1  000

10  000

1  037

2006/2007

7  000

7  000

1  887

2007/2008

7  000

7  000

1  865

2008/2009

7  000

7  000

3  955

2009/2010

7  000

7  000

7  144

2010/20111)

7  000

2011/20121)

7  000

2012/20131)

5  000

2013/20141)

5  000

2014/2015

5  000

5  000

4  105

2015/2016

4  000

4  000

4  259

2016/2017

4  100

4  100

3  066

2017/2018

5  000

5  000

3  519

2018/2019

5  852

5  852

2  490

2019/2020

4  682

4  682

1  703

2020/2021

5  136

5  136

3  182

2021/2022

5  136

5  136

2  117

2022/2023

5  022

5  022

1  988

2023/2024

5  022

5  022

1  346

2024/2025

4  537

4  537

1  327

2025/2026

4  537

4  537

2026/2027

3  246

2027/2028

3  246

1) Veiðar á úthafsrækju voru gefnar frjálsar

Heimildir og ítarefni

ICES. 2022. ICES technical guidance for harvest control rules and stock assessments for stocks in categories 2 and 3. In Report of ICES Advisory Committee, 2022. ICES Advice 2022, Section 16.4.11. (https://doi.org/10.17895/ices.advice.19801564).

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Úthafsrækja. Hafrannsóknastofnun, 31. ágúst 2026.