Rækja (Pandalus borealis).
Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem leiðir hámarksafraksturs til lengri tíma litið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meira en 248 tonn og að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Ísafjarðardjúpi. Forsendur ráðgjafar má finna hér.
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hefur verið nokkuð stöðug frá árinu 2018. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2025 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði og veiðar má nálgast hér.
Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi mældist lág og var hún undir skilgreindum viðmiðunarmörkum. Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Ísafjarðardjúpi og veiðar má nálgast hér í ráðgjafaraskýrslu og hér í tækniskýrslu.