Helstu niðurstöður
- Vísitala veiðistofns rækju hefur verið rétt fyrir ofan viðmiðunargildi frá árinu 2016 að undanskildum árunum 2017 og 2025 þegar hún var fyrir neðan viðmiðunargildi.
- Frá árinu 2005 hefur útbreiðsla rækju verið bundin við innri hluta Arnarfjarðar, að mestu leyti í Borgarfirði.
- Árin 2004-2012 og 2020-2025 voru vísitölur ýsu 1 árs og eldri háar en árið 2026 lækkaði vísitalan töluvert.
Almennar upplýsingar
Rækja (stóri kampalampi Pandalus borealis) er algengasta rækjutegundin við Ísland. Hún finnst allt í kringum landið en er algeng í köldum sjó á 10-700 m dýpi. Hún hefur fundist dýpra en fáar skráningar eru á meira en 1000 m dýpi. Rækja er algeng bráð margra fisktegunda og eru rækjustofnar viðkvæmir fyrir afráni. Á svæðum þar sem mikið er um afrán eru rækjustofnarnir litlir en þeir geta stækkað frekar hratt aftur ef afrán minnkar.
Greint er á milli rækju sem finnst á grunnslóð og í úthafinu. Ráðgjöf er veitt sérstaklega fyrir rækju í Arnarfirði.
Sjá nánar um líffræði rækju.
Veiðar
Rækjuveiðar í Arnarfirði hófust á fjórða áratug síðustu aldar. Á árunum 1960-2015 var rækjuafli á milli 100 og 850 tonn nema fiskveiðiárin 2005/2006 og 2006/2007 (Mynd 1) en þá voru rækjuveiðar ekki heimilaðar þar sem vísitala rækju var mjög lág. Frá árinu 1994 hefur aflinn lækkað jafnt og þétt og var aðeins 116 tonn fiskveiðiárið 2016/2017. Engar veiðar voru heimilaðar fiskveiðiárið 2017/2018 eða 2025/2026 en þá var vísitala rækju lág. Frá árinu 2018 hefur aflinn verið á milli 100 og 200 tonn. Afli á sóknareiningu (CPUE) var tiltölulega stöðugur milli 1960 og 1985, en var hærri til aldamóta (Mynd 1). Frá aldamótum hefur afli á sóknareiningu hækkað stöðugt, aðallega vegna aukins þéttleika rækju innst í firðinu.
Aðal veiðisvæðið hefur minnkað og frá árinu 2009 hefur mestu afli verið veiddur á tiltölulega litlu svæði innst í Arnarfirði, þ.e. í Borgarfirði (Mynd 2).
Leiðangrar
Frá árinu 1988 hefur verið farið árlega í leiðangur að hausti til að meta stofnstærð rækju í Arnarfirði. Árið 2026 fór stofnmælingin fram 9.-12. september. Teknar voru 22 stöðvar á 52-102 m dýpi. Allar upplýsingar um framkvæmd leiðangursins má finna í handbók verkefnisins (Ingibjörg G. Jónsdóttir 2026).
Á árunum 1988-1996 fannst rækja um allan Arnarfjörð (Mynd 3). Útbreiðslusvæðið minnkaði árið 1997 og frá árinu 2015 hefur rækja aðeins fundist innst í firðinum. Þessar breytingar eru aðallega vegna aukinnar fiskgengdar í firðinum. Árið 2026 fannst rækja inn á Borgarfirði (nyrðri fjörðurinn innst í Arnarfirði) og innst í Suðurfjörðunum.
Vísitölur
Reiknaðar eru fjórar vísitölur til að meta ástand stofnsins: vísitala stofnstærðar, vísitala veiðistofns, kvendýravísitala og vísitala ungrækju. Ungrækja eru allir einstaklingar með skjaldarlengd minni en 13 mm meðan veiðistofn eru allir einstaklingar 15,5 mm og stærri. Einstaklingum frá 13,0-15,5 mm skjaldarlengd er skipt á milli ungrækju og veiðistofns. Kvendýravísitala miðar við öll kvendýr og er það skilgreiningin á hrygningarstofni.
Vísitala stofnstærðar var nokkuð stöðug til ársins 2005 þegar hún lækkaði snögglega (Mynd 4). Frá árinu 2006 hafa vísitölurnar verið lægri en tiltölulega stöðugar en árið 2016 lækkuðu þær og síðan þá hefur vísitala veiðistofns verið rétt fyrir ofan viðmiðunargildi. Viðmiðunargildi (Ilim) er 20 % af meðaltali þriggja hæstu vísitalna úr stofnmælingu. Árið 2017 var vísitala veiðistofns í sögulegu lágmarki og undir viðmiðunargildi, árin 2018-2024 var hún rétt fyrir ofan viðmiðunargildi en var undir viðmiðunargildi árið 2025. Árið 2026 var vísitala veiðistofns yfir viðmiðunargildi. Vísitala ungrækju var lág á árunum 2016-2026 að undanteknu árunum 2024 og 2026.
Lengdardreifingar
Frá árinu 2011 hefur meðallengd kvendýra verið lægri og kvendýr ekki náð sömu stærð og áður. Frá árinu 2016 hafa stór kvendýr ekki mælst í Arnarfirði (Mynd 5). Árið 2026 mældist mikið af smáum karldýrum (ungrækju).
Magn þorsks og ýsu
Vísitala seiða (0-grúppa) þorsks og ýsu hefur sveiflast óreglulega í gegnum rannsóknatímann. Árið 2026 voru vísitölur ýsu- og þorskseiða frekar lágar. Vísitala ýsu 1 árs og eldri jókst eftir 1994 og á árunum 2004-2012 og 2020-2025 voru þær háar. Vísitala ýsu 1 árs og eldri lækkaði aftur árið 2026. Vísitala þorsks 1 árs og eldri hefur sveiflast á rannsóknatímabilinu án sýnilegrar leitni (Mynd 6).
Hitastig sjávar
Meðal yfirborðshiti sjávar hækkaði frá 1998 til 2003 og hefur verið á bilinu 8 - 10°C frá árinu 2007 að undanskildu árinu 2018 þegar meðal yfirborðshiti var 7°C (Mynd 7). Meðal yfirborðshiti árið 2026 var sá næsthæsti sem mælst hefur frá árinu 1988.
Meðal botnhiti sjávar jókst stöðugt frá 1988 til 2008 en hefur aðeins lækkað og hefur verið á bilinu 5,1 - 5,7°C frá 2020 til 2025. Árið 2026 lækkaði meðal botnhiti sjávar og var 4,2°C.
Fiskveiðistjórnun
Atvinnuvegaráðuneytið ber ábyrgð á og gefur út aflamark fyrir alla nytjastofna við Ísland. Fiskveiðiárið var frá hausti (að lokinni stofnmælingu í september/október) til 30. apríl en árið 2017 var því breytt til 31. ágúst. Leyfilegt aflamark og landaður afli hafa að mestu fylgt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar (Mynd 8).
Heimildir
Ingibjörg G. Jónsdóttir 2026. Handbók um stofnmælingu rækju árið 2026. Kver Hafrannsóknastofnunar, KV2026-04.