Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum 2020 - framkvæmd og helstu niðurstöður

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Út er komin skýrsla HV 2020-20 þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór dagana 27. febrúar til 20. mars 2020. Niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár, en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985.

Stofnvísitala þorsks hefur lækkað síðustu þrjú ár, en er þó hærri en árin 1990-2010. Vísitala ýsu hefur haldist svipuð frá árinu 2017 en vísitala ufsa hefur lækkað frá 2018 og er nú nálægt meðaltali rannsóknatímans. Vísitölur gullkarfa, litla karfa og löngu eru háar miðað við síðustu þrjá áratugi, en lækkandi líkt og vísitölur flestra tegunda flatfiska og skötusels. Vísitölur steinbíts og lýsu eru nú nálægt meðaltali tímabilsins, en stofnar keilu, hlýra og tindaskötu eru í sögulegu lágmarki. Vísitala grásleppu hækkaði frá fyrra ári og er nú nálægt meðaltali áranna frá 1985.

Fyrsta mæling á 2019 árgangi þorsks bendir til að hann sé yfir meðalstærð. Árgangar þorsks frá 2017 og 2018 mælast hins vegar undir meðallagi í fjölda. Árgangur ýsu frá 2019 mælist mjög stór; stærsti árgangur ýsu frá árinu 2004 ef miðað er við mælingu 1 árs fisks. Árgangar ýsu 2014-2017 mælast nálægt meðallagi, en þeir koma í kjölfar sex lélegra árganga. Árgangur ýsu frá 2018 er lélegur.

Meðalþyngd 1, 3 og 5 ára þorsks mældist undir meðaltali áranna 1985-2020, en meðalþyngd annarra aldurshópa var um eða yfir meðaltali. Mælingar síðustu ára sýna að árgangar 2015 og 2017 eru með þeim léttari frá 1985. Meðalþyngd ýsu eftir aldri hefur verið há undanfarin ár og mældist nú yfir meðaltali hjá öllum aldurshópum nema 1 og 3 ára. Loðna var helsta fæða þorsks og ýsu eins og ávallt á þessum árstíma. Mest var af loðnu í mögum þorsks og ýsu fyrir norðan og sunnan land, en mjög lítið við vestanvert landið. Þorskur er yfirleitt innan við 1% af fæðu 40-110 cm þorsks í marsmánuði (í ár 0,9%).

Útbreiðsla ýmissa nytjafiska hefur breyst á tímabilinu, t.d. ýsu og skötusels þar sem þungamiðja útbreiðslunnar færðist vestur og norður fyrir land upp úr aldamótum. Stofnmælingar síðustu ára benda til að útbreiðsla skötusels sé aftur farin að líkjast því sem var fyrir aldamót þegar stofninn var lítill, þ.e. bundin við sunnanvert landið. Magn ýmissa suðlægra tegunda sem lítið eru nýttar s.s. svartgómu, loðháfs, litlu brosmu og trjónuhala hefur aukist, en á sama tíma hafa ýmsar kaldsjávartegundir gefið eftir á landgrunninu fyrir norðan. Hitastig sjávar við botn mældist að meðal­tali hátt líkt og undanfarin ár.

Hlekkur á skýrslu.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?