Sjaldséður silfurpolli í haustralli

Silfurpolli (Polymetme corythaeola). Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Silfurpolli (Polymetme corythaeola). Mynd: Svanhildur Egilsdóttir.

Í nýafstöðnum leiðangri Hafrannsóknastofnunar, sem í daglegu tali gengur undir nafninu haustrall, veiddist tegund sem hefur ekki oft sést hér við land. Þessi tegund heitir silfurpolli á íslensku og ber fræðiheitið Polymetme corythaeola. 

Í rallinu var togað með botnvörpu á 370 stöðum allt í kringum landið. Allur afli er rannsakaður, bæði nytjafiskar og aðrar tegundir. Leiðangurinn er því kjörið tækifæri til að fylgjast með og skrásetja tegundir í hafinu kringum landið. Á einni stöð djúpt suður af Reykjanestá, þar sem togað var á rúmlega 500 m dýpi, fékkst tegund sem hefur ekki oft sést hér við land. Þessi tegund heitir silfurpolli á íslensku og ber fræðiheitið Polymetme corythaeola. Silfurpolli er frekar lítill, getur orðið allt að 26 cm á lengd.

Ljósberi úr Suðurhöfum? 

Hann er silfurlitaður eins og nafnið gefur til kynna, með svarta enda á sporðugga. Silfurpolli tilheyrir ættbálki ljósbera, er með tvær raðir ljósfæra á bol sem verða að einni röð á stirtlu.

Í fiskabók Gunnars Jónssonar og Jónbjörns Pálssonar, sem kom út árið 2013, er getið um eina silfurpollan sem veiðst hafði fram að þeim tíma, suðvestur af Surtsey árið 2007. Árið 2013 fengust tveir fiskar í marsralli, í haustralli 2015 fékkst einn silfurpolli og árið 2026 tveir, annar í júlí og hinn í haustrallinu í október. Í nýlegri grein sem fjallar um nýjan fundarstað silfurpolla í Miðjarðarhafi kemur fram að breytt útbreiðsla tegundarinnar sé rakin til hlýnunar sjávar í Norður-Atlantshafi. Einnig kemur þar fram að silfurpolli fannst fyrst árið 1966 við suðurströnd Portúgals en 30 árum síðar var hann orðin algeng tegund.

Hvort silfurpolla muni fjölga hér líkt og við Portúgal er ekki auðvelt að spá fyrir um, en áhugavert verður að fylgjast með framvindu tegundarinnar.

Nánar má lesa um silfurpolla hér.

 

Heimild: Lombarte, A., Balcells, M., Barría, C., & Azzurro, E. (2022). First record of the rendezvous fish, Polymetme corythaeola (Alcock, 1898), in the Mediterranean Sea. Journal of Applied Ichthyology, 38, 551–556. Møller, P. R., Nielsen, J. G., Knudsen, S. W., Poulsen, J. Y., Sünksen, K., & Jørgensen, O. A. (2010). A checklist of the fish fauna of Greenland waters. Zootaxa, 2378(1), 1–84.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?