Silfurpolli

Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Silfurpolli
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Silfurpolli
Ljósfæri, tvær raðir á bol. Ein röð á stirtlu. Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Silfurpolli
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Silfurpolli
Tungumál Samheiti
Fræðiheiti: Polymetme corythaeola
Enska: Rendezvous fish

Silfurpolli er bollangur, augu meðalstór, kjaftur er stór. Miðskoltstennur eru í tveimur röðum og neðraskoltstennur í tveimur röðum framan til. Aftan við bakugga og yfir aftanverðum raufarugga er stuttur veiðiuggi. Eyruggi er nokkuð framan við fremri rætur bakugga. Raufaruggi byrjar á móts við aftari rætur bakugga og lengd hans er meiri en tvöföld lengd bakugga. Síðasti geisli í bak- og raufaruggum eru klofnir niður að rót. Tvær raðir af kviðlægum ljósfærum á bol, en ein röð á stirtlu. Silfurpolli getur orðið allt að 26 cm langur, mældur að sporði. Litur er dökkur á baki, hliðar eru silfraðar.

Heimkynni. Í fiskabókinni voru heimkynni silfurpolla talin vera undan ströndum Norður Afríku og Portúgals, í Biskajaflóa og suðvestan Írlands norður til Rockall svæðisins og minnst er á að hann sé ekki að finna í Miðjarðarhafi en hafi fundist í Kyrrahafi. Síðan fiskabókin var skrifuð hefur útbreiðslan breyst. Nýlega birtist grein um fund silfurpolla í Miðjarðarhafi, þar kemur fram að breytt útbreiðsla tegundarinnar sé rakin til hlýnunar sjávar í Norður-Atlantshafi.

Fyrsti fiskurinn sem veiddist hér við land fékkst árið 2007 í botnvörpu á 393-412 m dýpi suðvestur af Surtsey, árið 2013 veiddust tveir fiskar, 2015 einn og 2026 tveir. Allir hafa þeir veiðst djúpt suðvestur og vestur af landinu.

Lífshættir: Silfurpolli er botn- og miðsævisfiskur sem heldur sig í landgrunnshalla á 165-800 m dýpi, en mest þó á 300-500 m.

Fæða er smá krabbadýr, einkum ljósáta.

Heimildir: 

Íslenskir fiskar. ( Mál og menning 2013), Höfundar: Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson. (2013).

Lombarte, A., Balcells, M., Barría, C., & Azzurro, E. (2022). First record of the rendezvous fish, Polymetme corythaeola (Alcock, 1898), in the Mediterranean Sea. Journal of Applied Ichthyology, 38, 551–556.

Møller, P. R., Nielsen, J. G., Knudsen, S. W., Poulsen, J. Y., Sünksen, K., & Jørgensen, O. A. (2010). A checklist of the fish fauna of Greenland waters. Zootaxa, 2378(1), 1–84.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?