Árni Friðriksson í makrílrannsóknum

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fór úr höfn 3. júlí til þátttöku í árlegum alþjóðlegum leiðangri.

Eitt af meginmarkmiðum leiðangurins er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.

Í leiðangrinum er einnig aflað gagna sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins, frá frumframleiðni sjávar til útbreiðslu hvala.

Þetta er fjórtánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í leiðangrinum ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Yfirferðasvæði Árna er fyrir norðan, austan, sunnan og vestan landið ásamt svæði í grænlenskri landhelgi fyrir norðan Ísland (mynd 1). Hluti íslensku lögsögunnar fyrir austan land verður dekkuð af færeyska rannsóknaskipinu Jákup Sverri.

Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og ferli Árna á vef Hafrannsóknastofnunar.

Leiðangurinn á Árna stendur í 20 daga. Gert er ráð fyrir að sigldar verði tæplega 3300 sjómílur eða um 6100 km og um 39 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrir fram ákveðnum stöðum. Um borð eru 7 vísindamenn og 15 manna áhöfn.

Mynd 1. Sumaruppsjávarleiðangur í júlí 2023. Sýndar eru leiðarlínur Árna Friðrikssonar (bleik lína) og annarra þátttökuskipa og staðsetningar fyrir fram ákveðinna yfirborðstogstöðva og vistfræðirannsókna (opnir svartir hringir). Landhelgi Íslands og nágrannalanda er sýnd með svörtum línum. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?