Rannsókna-og nýsköpunaráætlun ESB styrkir vísindastarf Hafrannsóknastofnunar

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Undanfarin þrjú ár hefur Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna fengið rúmlega 433 milljónir króna í styrki úr Rannsókna-og nýsköpunaráætlun ESB (Horizon 2020). Stofnunin hefur lagt aukna áherslu á alþjóðlegt rannsóknasamstarf á síðustu árum með umsóknum í samkeppnissjóði sem hafa skilað góðum árangri. Í dag taka starfsmenn Hafrannsóknastofnunar þátt í 11 evrópuverkefnum sem hlotið hafa styrk úr Horizon 2020 en að þessum verkefnum vinnur fjöldi vísindafólks víðs vegar í Evrópu frá meira en 200 rannsóknastofnunum og fyrirtækjum.

Verkefnin sem starfsmenn Hafrannsóknastofnunar taka þátt í eru af ýmsum toga.

Sem dæmi um viðfangsefni má nefna svokallað MEESO verkefni þar sem verið er að rannsaka viskerfi miðsjávarlaga (á 100 til 1000 metra dýpi). Meginmarkmið þess er að auka þekkingu á magni, dreifingu, tegundasamsetningu, framleiðni og nýtingarmöguleikum lykiltegunda í miðsjávarlögunum, og hlutverki þeirra í kolefnisbúskap hafsins. Verkefnið einskorðast ekki við fiska, heldur verður magn og framleiðni hryggleysinga einnig rannsökuð, enda er talið að magn þeirra í miðsjávarlögunum sé umtalsvert, jafnvel af sömu stærðargráðu og fiska. MEESO verkefnið hefur verið styrkt um rúmar 117 milljónir króna.

Þá má nefna ECOTIP verkefnið sem mun bæta skilning okkar á orsökum, þolmörkum og afleiðingum af keðjuverkunum sem verða í vistkerfinu þegar farið er yfir þolmörk þess og áhrifum þeirra á líffræðilegan fjölbreytileika í Norðurhöfum. Verkefnið mun fella líffræðilegar athuganir inn í nálgun að líffræðilegum fjölbreytileika sjávar sem byggir á eiginleikum lífvera og nota þá nálgun til að tengja breytingar á samfélögum lífvera við virkni vistkerfa. Verkefnið mun einnig kortleggja líffræðilegan fjölbreytileika á norðurslóðum í fortíð og nútíð, ásamt viðbrögðum hans við ytri skilyrðum.

Um Horizon 2020

Horizon 2020, Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB endurspeglar grundvallarmarkmið og stefnu ESB um að styðja sjálfbæran hagvöxt í Evrópu. Markmið Horizon 2020 er að styðja við rannsóknir og nýsköpun á öllum fræðasviðum með það að markmiði að auka samkeppnishæfni Evrópu, skapa störf og stuðla að því að fleiri góðar hugmyndir komist á markað.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?