Ráðgjöf um veiðar á humri árið 2021

Humar. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir. Humar. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að afli ársins 2021 verði ekki meiri en 143 tonn svo fylgjast megi með stærðarsamsetningu og dreifingu stofnsins. Jafnframt leggur stofnunin til að allar humarveiðar verði bannaðar í Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar uppvaxandi humri.

Til að minnka álag á humarslóð ráðleggur Hafrannsóknastofnun að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi.

Stofnstærð humars í stofnmælingu 2020 lækkaði um 27% frá árinu 2016. Á sama tíma hefur veiðihlutfall minnkað úr 1.9% í 0.4%. Þéttleiki humarholna við Ísland (0.065 holur/m2) mælist nú með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf um. Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.

https://www.hafogvatn.is/is/veidiradgjof/humar

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?