Frá marsralli 2025. Ljósmynd: Rut Sigurðardóttir.
Hafrannsóknastofnun kynnir úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár föstudaginn 12. júní 2026 kl. 9.00. Kynningin fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5, Hafnarfirði en verður einnig streymt á Teams.
Gestum verður boðið að þiggja léttar kaffiveitingar fyrir fundinn. Fundurinn er öllum opinn fyrir áhugasama.
Dagskrá fundarins:
08:30 – Húsið opnar - léttar kaffiveitingar
09:00 – Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar setur fundinn
09:10 - Kynningar um ýmis mál, þ.m.t vistkerfisyfirlit og árangursmælikvarðar.
10:00 - Kynning ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Bjarki Þór Elvarsson sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun kynnir. Í kjölfarið er boðið upp á spurningar og svör í sal. Ekki verður tekið frá fyrirspurnum eða spurningum frá gestum á fjarfundi.
10:45 – Almennar umræður: t.d nánar um ráðgjöf einstakra tegunda – farið í forsendur, og eftir atvikum nánar í aðrar tegundir, að ósk fundarmanna.
11:00 – Lok fundar
Þáttakendur eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en á hádegi fimmtudaginn 11. júni 2026.
Tengil fyrir fjarfund (Teams) má finna hér. Athugið þau sem mæta á fjarfund geta ekki tekið þátt í fundinum með sama hætti og þau sem mæta staðbundið.