Atlantic Plastics 2026: frá þekkingu til aðgerða

Haraldur Arnar Einarsson flytur aðalerindi sitt í Hörpu. Haraldur Arnar Einarsson flytur aðalerindi sitt í Hörpu.

Dagana 20.–22. október fór fram í Hörpu alþjóðlega málþingið Atlantic Plastics 2026 um plastmengun í hafi, undir yfirskriftinni Arctic to the Antarctic. Þetta er þriðja málþingið af þessu tagi sem íslensk stjórnvöld halda. Að því standa Norðurslóðanet Íslands (IACN), PAME (vinnuhópur Norðurskautsráðsins um verndun hafsins), UNESCO og Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES). Fyrsti viðburðurinn var rafræn málstofa árið 2021 og sá annar málþing í Reykjavík árið 2023. Þá var sjónum einkum beint að norðurslóðum, en nú var Atlantshafið allt undir, frá norðurslóðum til suðurskautsins.

Framlag Hafrannsóknastofnunar

Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar setti sterkan svip á málþingið. Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur í veiðarfærum hjá Hafrannsóknastofnun og FAO, flutti aðalerindi um hringrás veiðarfæra, kynnti norræna skýrslu um sama efni og tók þátt í lokapallborði málþingsins. Sólveig Rósa Ólafsdóttir hafefnafræðingur og Georg Haney, sérfræðingur í veiðarfærum, voru skýrsluritarar á þemafundum, Sólveig í þemanu um vöktun og Georg í þemanu um hringrásarhagkerfi og lausnir. Þau tóku saman helstu niðurstöður og kynntu þær fyrir þátttakendum málþingsins.

Helstu skilaboð

Fyrsta daginn var lögð áhersla á að vöktun þurfi að skila gögnum sem nýtast í stefnumótun og að samræmdar aðferðir, gæðaeftirlit og greining á uppruna séu forsenda sambærilegra niðurstaðna. Annan daginn kom fram að þekkingin sé þegar nægileg til að réttlæta aðgerðir. Veiðarfærarusl veldur áfram skaða á lífríkinu og í öllum súluhreiðrum sem skoðuð voru í Eldey fannst plast. Hringrás veiðarfæra þarf að ná yfir allan líftíma þeirra og byggja á merkingum veiðarfæra, skipulagðri endurheimt og framleiðendaábyrgð.

Síðasta daginn var rætt hvernig færa megi þekkingu yfir í aðgerðir, meðal annars á grundvelli könnunar sem 116 þátttakendur svöruðu. Meginskilaboðin voru að koma í veg fyrir óþarfa framleiðslu og notkun plasts við upptök, deila ábyrgð með framleiðendum og tryggja að vel heppnuð tilraunaverkefni fái stjórnsýslulega umgjörð og varanlega fjármögnun svo hægt sé að útfæra þau víðar. Fyrir hringrás veiðarfæra þarf samræmdar reglur, skýra skilgreiningu á framleiðanda, hvata til betri hönnunar og sterkari markaði fyrir endurunnið efni.

Nánari samantekt á málþinginu má finna á vef Atlantic Plastics 2026.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?