Haraldur Arnar Einarsson Haraldur Arnar Einarsson og einn helsti sérfræðingur landsins um veiðarfæri.
Dagana 20.–22. október fór fram í Hörpu alþjóðlega málþingið Atlantic Plastics 2026 um plastmengun í hafi, undir yfirskriftinni Arctic to the Antarctic. Þetta er þriðja málþingið af þessu tagi sem íslensk stjórnvöld halda. Að skipulagningunni standa Norðurslóðanet Íslands (IACN), PAME, vinnuhópur Norðurskautsráðsins um verndun hafsins, UNESCO og Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES). Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar tók virkan þátt í málþinginu, meðal annars í pallborðsumræðum, aðalerindum og kynningum, m.a. Haraldur Arnar Einarsson fiskifræðingur og einn helsti sérfræðingur landsins um veiðarfæri hélt erindi á ráðstefnunni (mynd).
Málþingið á sér nokkra sögu. Árið 2021 var haldin rafræn málstofa og árið 2023 málþing í Reykjavík. Fyrri viðburðirnir beindu sjónum einkum að norðurslóðum, en að þessu sinni var sjónarhornið víkkað út og náði til heimsins alls.
Á málþinginu var fjallað um uppruna, vöktun og líkanagerð sjávarrusls. Vöktun á strandrusli, stórplasti, örplasti og nanóplasti hefur aukist verulega á síðasta áratug og hjálpað vísindamönnum að átta sig á umfangi og áhrifum plastmengunar í hafi. Næsta skref er að fylgja þessari þekkingu eftir með stefnumótun og aðgerðum sem dregið geta með árangursríkum hætti úr plastmengun í hafi.