Ráðgjöfin 2023 hefur verið birt

Ráðgjöfin 2023 hefur verið birt

Í dag kynnti Hafrannsóknastofnun úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna er lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. 

Ráðgjöfina í heild sinni má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar undir Ráðgjöf og neðar í fréttinni má finna upptöku af beinu streymi kynningarinnar.

Þorskur

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 1 % hækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2023/2024. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því hækkar ráðlagður heildarafli úr 208 846 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 211 309 tonn. Hækkunina má rekja til hækkunar á mati á viðmiðunarstofni í ár. Gert er ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks fari hægt vaxandi næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2019 og 2020 koma að fullu inn í viðmiðunarstofninn þar sem þeir eru nú metnir yfir meðallagi.

Ýsa

Samkvæmt aflareglu verður aflamark ýsu 76 415 tonn sem er 23 % hækkun frá yfirstandandi fiskveiðiári. Áætlað er að viðmiðunarstofninn muni stækka næstu tvö árin vegna góðrar nýliðunar áranna 2019 til 2021.

Ufsi

Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt aflareglu lækkar um 7 % frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 66 533 tonn.

Gullkarfi

Ráðgjöf fyrir gullkarfa 2023/2024 er 41 286 tonn, 62 % hærri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Ástæða hækkunarinnar er sú að grunnur stofnmats var endurskoðaður á rýnifundi Alþjóðahafrannsóknaráðsins í byrjun árs. Þrátt fyrir hækkunina er rétt að benda á að nýliðun gullkarfa hefur verið mjög slök undanfarinn áratug og af þeim sökum hefur hrygningarstofn minnkað umtalsvert á undanförnum árum. Fyrirséð er að stofninn fari minnkandi á komandi árum og að draga þurfi verulega úr sókn.

Djúpkarfi

Lagt er til að aflamark djúpkarfa verði 0 tonn þar sem hrygningarstofn er metinn undir varúðarmörkum. Þessi ráðgjöf er byggð á nýuppfærðu stofnmati fyrir djúpkarfa eftir rýnifund Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Ekki er búist að stofninn fari upp fyrir varúðarmörk í fyrirsjáanlegri framtíð.

Grálúða

Ráðgjöf fyrir grálúðu lækkar um 19 % frá fyrra ári og er 21 541 tonn. Ráðlagt aflamark er lægra vegna endurskoðunar á grundvelli stofnmatsins eftir rýnifund Alþjóðahafrannsóknaráðsins.

Sumargotssíld

Stofnstærð íslensku sumargotssíldarinnar fer nú ört vaxandi, eftir samfellda minnkun árin 2008–2019 vegna slakrar nýliðunar og þrálátrar frumdýrasýkingar í stofninum. Árgangar 2017–2019 eru metnir talsvert stærri en undangengnir árgangar og eru nú meginuppistaðan í viðmiðunarstofninum. Ráðgjöf samkvæmt aflareglu stjórnvalda er 92 634 tonn eða 40 % hærri en á yfirstandandi fiskveiðiári.

Á meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir ráðgjöf stofnunarinnar.

Ráðgjöf 2023

Upptaka, glærur og fréttatilkynningar ráðgjafarinnar

 

Glærurnar

Fréttatilkynningin á íslensku

Fréttatilkynningin á ensku


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?