Vatn er undirstaða lífs og sameiginleg auðlind sem tengir saman náttúru, samfélag og daglegt líf okkar. Nafnið vísar því ekki aðeins til lífríkis í ám, vötnum og strandsjó heldur til vatnsins í víðara samhengi, frá uppsprettu til sjávar og frá náttúrulegum vistkerfum til vatnsnotkunar og samfélags. Vatnalíf fangar þannig vel þá breidd sem einkennir verkefnið og fjölbreytt viðfangsefni þess.
Sex þátttakendur lögðu til nafnið Vatnalíf og var því dregið af handahófi úr þeim hópi. Óli Kristján Ármannsson var dreginn út og hlýtur gjafabréf fyrir tvo í Reykjaböðin í Hveragerði. Við óskum Óla Kristjáni til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábærar hugmyndir og góðar tillögur!
Vatnalíf tekið í notkun
Næsta skref er að taka nýja heitið smám saman í notkun í íslenskri miðlun verkefnisins. Það gerist í áföngum á næstu vikum og mánuðum og því mun LIFE Icewater áfram sjást samhliða Vatnalífi um tíma á meðan miðlar og kynningarefni eru uppfærð.