Ný fiskitegund á íslensku hafsvæði

Þverhyrna (Lophodolos acanthognadus). Mynd: Svanhildur Egilsdóttir. Þverhyrna (Lophodolos acanthognadus). Mynd: Svanhildur Egilsdóttir.

Fyrir nokkru lauk árlegu haustralli Hafrannsóknastofnunar en í þeim leiðangri er meðal annars togað á miklu dýpi eða allt að 1400 metrum. Þegar togað er svona djúpt finnast fjölmargar tegundir sem eru lítt þekktar þótt sumar séu nokkuð algengar. Einnig fást sjaldgæfar tegundir og sumar þeirra hafa fundist aðeins nokkrum sinnum á þeim 25 árum sem haustrallið hefur farið fram. Í haustralli ársins veiddist tegundin þverhyrna (Lophodolos acanthognadus) í fyrsta sinn í íslenskri efnahagslögsögu. Þverhyrna tilheyrir hyrnuætt af ættbálki kjaftagelgna en flestir fiskar þessa ættbálks eru djúpfiskar, ýmist botnfiskar eða botn- og miðsævisfiskar.

Þegar sjaldgæfar tegundir fást í leiðöngrum eru þær frystar og skoðaðar nánar við betri aðstæður á rannsóknastofu. Einn höfunda bókarinnar Íslenskir fiskar, Jónbjörn Pálsson, hefur oft verið innan handar við greiningar. Venjulega kostar þessi greiningarvinna þó nokkra yfirlegu en í þetta sinn þurfti Jónbjörn ekki annað en að berja fiskinn augum í nokkrar sekúndur til að þekkja tegundina. Kom þá upp úr dúrnum að þessi tegund hefur verið þeim Gunnari Jónssyni (meðhöfundur Jónbjörns að bókinni Íslenskir fiskar) kunn í nokkurn tíma en hún hefur veiðst áður utan íslenskrar efnahagslögsögu t.d. í leiðöngrum í Grænlandshafi. Í ár veiddist þverhyrna innan íslenskrar efnahagslögsögu og getur hún því hér með talist til íslenskrar fiskafánu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?