Makríll í kantinum suður með landinu

Yfirborðstog í Grænlandssundi í júlí 2023, segl og belgir sjást í yfirborði. Ljósm. Anna Heiða Ólafs… Yfirborðstog í Grænlandssundi í júlí 2023, segl og belgir sjást í yfirborði. Ljósm. Anna Heiða Ólafsdóttir.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi þann 21. júlí.

Í þessum 19 daga leiðangri Árna kringum landið voru teknar 43 togstöðvar og sigldar um 3250 sjómílur eða 6 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.

Álíka þéttleiki makríls en minna útbreiðslusvæði

Rannsökuð var útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar rannsökuðu.

Bráðbirgðaniðurstöður mælinga á Árna sýna að þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu var álíka og síðasta sumar en útbreiðslusvæðið var minna, sjá mynd 1.

Makríll fannst aðallega á landgrunninu og landgrunnsbrúninni meðfram suðurströnd landsins og fáeinir fiskar fengust fyrir vestan landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslenska sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið.

Kynþroska kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið í álíka þéttleika og síðasta sumar.

Bráðabirgðaniðurstöður sýna að hitastig í yfirborðslagi sjávar var álíka og sumarið 2022 fyrir sunnan og vestan landið en kaldara fyrir norðan.


Mynd 1. Útbreiðsla og þéttleiki (rauðir fylltir hringir) makríls (efri) og síldar neðri ásamt hitastigi í yfirborðslagi sjávar. Yfirborðstogstöðvar með engum afla af viðkomandi tegund eru táknaðar með svörtum punkt. Athugið að kvarði fyrir þéttleika er mismunandi milli tegunda. Einnig eru sýndar dýptarlínur fyrir 200 m, 500 m og 1000 m.

Leiðangur Norðmanna stendur enn yfir á tveimur skipum. Gögn frá skipunum fimm sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður kynntar undir lok ágúst.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?