Efnafræðingur

Hafrannsóknastofnun leitar eftir efnafræðingi í sjórannsóknateymi stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Úrvinnsla haffræðigagna, kvarðanir og gæðaeftirlit.
  • Söfnun sjósýna og efnagreiningar á rannsóknastofu.
  • Kvörðun nema og uppsetning mælitækja.
  • Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum um borð í rannsóknaskipum.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í efnafræði eða skyldum greinum er skilyrði.
  • Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt) er kostur.
  • Reynsla af störfum á rannsóknastofu og notkun rannsóknatækja er kostur.
  • Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er ákjósanleg.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.
  • Afrit af prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Hafrannsóknastofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2023

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri Umhverfissviðs- hronn.egilsdottir@hafogvatn.is - 695 6705
Sólveig Lilja Einarsdóttir, Mannauðssvið - solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is

Smelltu hér til að sækja um starfið


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?