Tugir meintra strokulaxa komnir í erfðagreiningu

Mynd tekin úr dróna af laxastiga í Laugardalsá. Mynd tekin úr dróna af laxastiga í Laugardalsá.

Yfir 60 sýni af meintum strokulöxum eru komin í erfðagreiningu.

Hafrannsóknastofnun hefur staðfest eldisuppruna 27 laxa með útlits og erfðagreiningum.

Tugir meintra strokulaxa borist til viðbótar

Yfir 60 mögulegir strokulaxar hafa borist Hafrannsóknastofnun til greiningar frá veiðimönnum og Fiskistofu frá síðustu niðurstöðum (birt á síðu MAST 8. september). Yfir 20 laxar hafa borist til Hafrannsóknastofnunar, í gær og í dag.

Öllum sýnum hefur verið komið í erfðagreiningar hjá Matís utan eins sýnis sem barst útibúi Hafrannsóknastofnunar á Akureyri úr meintum eldislaxi úr Fnjóská.

Áfram er hægt að skila inn mögulegum strokulöxum til Hafrannsóknastofnunar eða Fiskistofu. Þetta er gert til að fá sem besta mynd af umfangi eldislaxa í ám og dreifingu þeirra.

Meðfylgjandi mynd sýnir hvar staðfestir eða mögulegir strokulaxar hafa veiðst og stöðu greininga þeirra.

 

Mynd 1. Sýnir hvar staðfestir eða mögulegir strokulaxar hafa veiðst og stöðu greininga þeirra.

Þakkir til veiðimanna

Í kjölfar frétta um göt á eldiskví og göngur strokulaxa í ár hvatti Hafrannsóknastofnun stangveiðimenn til að koma löxum með möguleg eldiseinkenni í greiningu hjá stofnuninni. Hafrannsóknastofnun þakkar öllum þeim sem hafa komið með fiska í greiningu og látið vitað af þeim sem eru á leiðinni.

Erfðagreiningar á strokulöxum í fullum gangi - Matís (matis.is), 13. september 2023.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?