Handbók um Stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum 2024. KV 2024-01

Nánari upplýsingar
Titill Handbók um Stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum 2024. KV 2024-01
Lýsing

Handbók þessi lýsir framkvæmd rannsóknaverkefnisins „Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum“ sem fer fram í marsmánuði á hverju ári. Í handbókinni er nákvæmlega lýst fyrirhugaðri framkvæmd verkefnisins í mars 2024, m.a. umfangi gagnasöfnunar, hvernig safna eigi líffræðilegum upplýsingum, skráningu mælinga, veiðarfæri og veiðiaðferðum. Einnig eru fyrirmæli um það hvernig aðferðum skuli beitt við tog og gefnar nákvæmar staðsetningar og aðrar upplýsingar um togstöðvar. Þá eru í handbókinni stutt yfirlit yfir sögu verkefnisins.

Ingibjörg G. Jónsdóttir, Hjalti Karlsson, Höskuldur Björnsson, Jón Sólmundsson, Klara B. Jakobsdóttir, Valur Bogason, 2024. Handbók um stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum. KV 2024-01.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Kver (2016-)
Útgáfurit Kver
Útgáfuár 2024
Tölublað 1
Blaðsíður 17
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð handbók, stofnmæling botnfiska, SMB, Íslandsmið, mars
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?