| Lýsing |
Ágrip
Vegna þverunar Gufu-, Djúpa- og Þorskafjarðar var Hafrannsóknastofnun fengin til að vakta fiskungviði á svæðinu fyrir framkvæmdir, á meðan og eftir verklok, með fiskmerkingum fyrir og eftir framkvæmdir. Hér verða kynntar fiskmerkingar fyrir þverun í Djúpafirði og sýnataka með smátrolli og bjálkatrolli fyrir framkvæmdir og á meðan á þeim stóð í Djúpa- og Þorskafirði. Hljóðduflum var komið fyrir, 13 fiskar merktir og þeim sleppt í Djúpafirði í byrjun sumars 2021. Í september voru duflin sótt samhliða sýnatöku með smátrolli og bjálkatrolli, sem var svo endurtekin í september 2025. Níu af 13 fiskum, allt þorskar, mældust með hljóðduflunum yfir sumarið. Flestir þeirra héldu til í firðinum í byrjun en létu sig svo hverfa í kringum mánaðarmótin júlí-ágúst. Greining á ferðum þeirra leiddi í ljós að þeir héldu mest til á djúpa svæðinu innan við þverun. Helstu tegundir sem veiddust í smátroll og bjálkatroll, voru þorskur (Gadus morhua), ufsi (Pollachius virens), skarkoli (Pleuronectes platessa), hornsíli (Gasterosteus aculeatus), marhnútur (Myoxocephalus scorpius), sprettfiskur (Pholis gunnellus), sandrækja (Crangon crangon) og litli kampalampi (Pandalus montagui). Ufsi og hornsíli veiddust þó einungis 2021, þorsk og sandrækju fækkaði en skarkola, marhnút og litla kampalampa fjölgaði á mili 2021 og 2025. Þar sem merktu þorskarnir voru flestir farnir í byrjun september er mögulegt að meira hefði mælst 1-2 mánuðum fyrr. Merkingar og sýnataka verða endurtekin eftir verklok.
Abstract
As part of the road construction across Gufufjörð, Djúpafjörð and Þorskafjörð, the Marine and Freshwater Research Institute was hired to conduct monitoring of juvenile fish in the area before, during and after construction. The study included acoustic tagging along with sampling with a small trawl and a beam trawl. In early summer 2021, acoustic receivers were placed in Djúpifjörður and thirteen fish were tagged and released. The receivers were retrieved in September along with the trawl sampling. The sampling was repeated in 2025. During the summer, nine of the thirteen tagged cod were detected by the receivers. Most individuals remained within the fjord early in the the season but left the area in late July or early August. Network analysis indicated that the deep area inside the crossing site was the most utilized habitat. Sampling results from the trawls showed that the dominant species in the study area were cod (Gadus morhua), saithe (Pollachius virens), plaice (Pleuronectes platessa), three spine stickeback (Gasterosteus aculeatus), bullrout (Myoxocephalus scorpius), rock gunnel (Pholis gunnellus), brown shrimp (Crangon crangon) and pink shrimp (Pandalus montagui). Saithe and stickleback were only captured in 2021, and cod and brown shrimp numbers declined substantially. In contrast, plaice, bullrout and pink shrimp densities increased. As most of the tagged cod had left the fjord by early September, sampling one or two months earlier could have yielded higher densities. Tagging and sampling will be repeated following the completion of the constructions.
|